Leif Av Reyni til liðs við Arctic Fish

Leif av Reyni

Reynslumikill stjórnandi úr færeysku fiskeldi hefur verið ráðinn til Arctic Fish.

Í tilkynningu frá Arctic Fish kemru fram að fyrirtækið hefur ráðið til sín stjórnanda úr færeysku laxeldi sem verkefnastjóra.

„Leif Av Reyni hefur verið ráðinn verkefnastjóri sjó- og landeldis hjá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish, sem starfar á sunnanverðum Vestfjörðum. Leif er reynslumikill stjórnandi úr færeysku fiskeldi. Hann mun bera ábyrgð á frekari uppbyggingu og þróun seiðaeldisstöðvar Arctic Fish í Norður-Botni í Tálknafirði – ekki síst með aukna endurnýtingu fyrir augum. Þá mun hann vinna að uppsetningu nýrra eldissvæða fyrirtækisins í Patreks- og Tálknafirði. Leif hefur störf á næstu dögum.

Síðustu átta ár starfaði Leif sem framkvæmdastjóri ferskvatnsafurða hjá Bakkafrost í Færeyjum og þar áður var hann framkvæmdastjóri hjá Vestlax fiskeldisfyrirtækinu. Leif sat í stjórn rannsóknarstöðvar fiskeldis í Færeyjum á árunum 2006-2016 og situr í stjórn JT Electrics sem framleiðir búnað til fiskeldis. Leif býr yfir djúpri og yfirgripsmikilli þekkingu á fiskeldi og hefur m.a. verið ráðgjafi fiskeldisfyrirtækja í Chile og komið að uppsetningu bólusetningakerfa í fiskeldi í Ghana.

Leif er með B.Sc. gráðu í fiskeldisfræðum frá Háskólanum í Sogndal í Noregi og M.Sc. gráðu í fiskeldisfræðum frá Háskólanum í Stirling í Skotlandi. Hann er fæddur og uppalinn í Þórshöfn í Færeyjum og fluttist síðar í Kollafjörð ásamt eiginkonu sinni, Lailu, að námi loknu. Saman eiga Leif og Laila tvö börn, þau Natösju og Eivind.

Leif hefur ástríðu fyrir fiskeldi og öllu sem því viðkemur, ásamt því að stunda skíði og köfun. Leif þekkir nú þegar vel til íslensks fiskeldis, en í starfi sínu hjá Bakkafrost vann hann náið með hinum rótgróna seiða- og hrognaframleiðanda Stofnfiski, sem og öðrum fiskeldisfyrirtækjum hér á landi.“

DEILA