Fundu sex kindur

Flugvélin sem þeir voru á. Flugmaðurinn var Snæbjörn Jónsson.

Frá því er sagt á Reykhólavefnum að  tengdafeðgarnir Sigmundur Magnússon og Guðmundur Sigvaldason fóru í byrjun mánaðrins í flugferð til að svipast um eftir fé í dölunum Djúpmegin við Kollafjarðarheiðina.

Fundu þeir 6 kindur í svonefndri Lambatungu, sem er milli Mjóadals og Geitadals, sem gengur inn af Laugabólsdal. Nokkrum dögum síðar fór Brynjólfur Smárason á vélsleða yfir Kollafjarðarheiði og náði að reka féð yfir í Fjarðarhornsdal, þar sem það var svo sótt daginn eftir.

Þetta reyndust vera 2 tvílembur frá Fremri Gufudal, og voru kindurnar í góðu ásigkomulagi að því fram kemur í fréttinni.

Kindurnar 6 nýkomar í hús. mynd Svandís Reynisdóttir.

  

DEILA