Ferðakynning: gönguferðir um Spán og Grænland

Reynir Traustason.

Laugardaginn 23. febrúar kl. 14 verður ferðakynning á vegum Sólartúns í sal veitingastaðarins Heimabyggðar, Aðalstræti 22 á Ísafirði. Reynir Traustason fararstjóri kynnir þar Vestfirðingum gönguferð á Spáni um páskana og göngu um óbyggðir Suður-Grænlands í júni. Sólartún er í eigu Reynis og Stefáns Hrafns Magnússonar hreindýrabónda á Grænlandi. Stefán og Reynir munu báðir leiða hópana í ferðunum á Spáni og á Grænlandi.

Gangan á Grænlandi er að miklu leyti um jörð Stefáns í Isortoq. Ferðin er einstök að því leyti að ekki hefur áður verið farið í skipulagða göngferð á þessum slóðum. Stærð jarðarinnar samsvarar öllum Reykjanesskaganum. Hreindýr Stefáns eru þúsundir, Afsláttur er í boði í báðum ferðunum. Spánarferðin er um fjöll, eyju og flatlendi ofan við Costa Blanca. Sjá nánar á https://www.facebook.com/S%C3%B3lart%C3%BAn-894975233960221/?modal=admin_todo_tour

Nánari upplýsingar gefur: Reynir Traustason í síma 820 5200,
DEILA