Ánægja með áramótaskaupið

Töluverðrar ánægju gætti með Áramótaskaupið 2018 meðal landsmanna en 62% þátttakenda í könnun MMR sögðu Áramótaskaupið hafa verið gott. Töldu 33% svarenda Skaupið 2018 hafa verið mjög gott, 29% sögðu það frekar gott, 17% hvorki gott né slakt, 10% frekar slakt og 10% mjög slakt.

Skaupið sérlega vinsælt meðal yngri kynslóðarinnar

Skaupið féll ágætlega í kramið hjá kvenkynssvarendum en 65% kvenna kváðu Skaupið hafa verið gott, samanborið við 58% karla. Þá fór ánægjan minnkandi með auknum aldri en 71% yngsta aldurshópsins (18-29 ára) sögðu Skaupið hafa verið frekar eða mjög gott, samanborið við 49% þeirra elstu (68 ára og eldri).

Samfylkingarfólk ánægt

Stuðningsfólk Samfylkingarinnar virðist hafa verið sérlega ánægt með Skaupið en 80% þeirra kváðu Skaupið hafa verið gott og einungis 8% kváðu það hafa verið slakt. Þá gætti einnig nokkurrar ánægju á meðal stuðningsfólks Pírata (73%) og Vinstri grænna (71%). Minnst ánægja með Skaupið var hjá stuðningsfólki Miðflokksins (33%) og Flokks fólksins (45%) en af stuðningsfólki Miðflokksins sögðu 37% skaupið hafa verið mjög slakt og 19% frekar slakt.

Spurt var: „Hvernig fannst þér Áramótaskaupið 2018?“
Svarmöguleikar voru: „Mjög slakt“, „Frekar slakt“, „Bæði og“, „Frekar gott“, „Mjög gott“, „Ég horfði ekki á áramótaskaupið“ og „Veit ekki/vil ekki svara“. Samtals tóku 95,9% afstöðu til spurningarinnar.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR.
Svarfjöldi: 2061 einstaklingur
Dagsetning framkvæmdar: 4. til 14. janúar 2019

DEILA