Þrettándagleði í dag

Þingeyri:

Þrettándagleði verður á Þingeyri í dag kl 17. Það eru Björgunarsveitin Dýri og íþróttafélagið Höfrundur sem standa fyrir gleðinni.

Komið verður saman innst á Brekkugötunni og þar verða seldir kyndlar á vægu verði. gengið verður sömu leið og áður og endar gangan við Stefánsbúð, hús björgunarsveitarinnar. Þar verður kveiktur langeldur og lýkur samkomunni með flugeldasýningu.

Bolungavík:

 

Á þrettánda dag jóla er haldin hin árlega þrettándagleði Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar.

Hátíðarsvæðið verður fyrir neðan Tónlistarskóla Bolungarvíkur en ekki við Hreggnasa vegna tíðarfarsins og hefst kl 18.

Á þrettándagleðina í Bolungarvík koma álfar og kóngafólk, prinsar og prinsessur, stallari, biskup og skratti, bændafólk, álfameyjar, ljósálfar og svartálfar, jólasveinar, púkar og Grýlu-börn og svo auðvitað Grýla sjálf með Leppalúða sinn.

Dans er stiginn og söngvar sungnir við hljóðfæraspil og þrettándabrennu svo sem vera ber á þrettándanum.

Löng hefð er fyrir því að þrettándagleðin endi á flugeldasýningu sem Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík stendur fyrir.

Sveitarfélögin skiptast á að halda þrettándagleði og í ár er þrettándagleðin haldin í Bolungarvík.

DEILA