Stofnfundur félags um verslun í Árneshreppi

Kaupfélagshúsið í Norðurfirði.

Nú stendur til að stofna einkahlutafélag um rekstur verslunar í Norðurfirði. Stofnfundurinn verður haldinn í húsnæði verslunarinnar þriðjudaginn 29. janúar kl. 13:30, en föstudaginn 1. febrúar kl. 13:30 til vara. Íbúum Árneshrepps er boðið að gerast stofnfélagar með því að skrá sig fyrir hlut í félaginu. Hvert hlutabréf er að upphæð 25.000 kr, en vitaskuld er heimilt að kaupa fleiri en eitt hlutabréf. Þeir sem vilja gerast hluthafar í félaginu skulu leggja andvirði hlutafjárins inn á biðreikning 1161-05-56 sem er í eigu Árneshrepps, kt 4301690419. Hlutaféð verður síðan fært yfir á reikning félagsins þegar það hefur fengið kennitölu og bankareikning. Stefnan er að reka verslunina með takmörkuðum opnunartíma yfir vetrarmánuðina, t.d. tvo tíma tvisvar í viku en hafa fullan opnunartíma yfir sumarmánuðina.

Það er fréttavefurinn Litli Hjalli í Árneshreppi sem greinir frá.

DEILA