Skattaafsláttur til þriðja geirans

Jón Gunnarsson, alþm.

Frumvarp til laga liggur nú fyrir á Alþingi um endurgreiðslur til félagasamtaka til almannaheilla vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, og mælti hann fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær.

Lögunum er ætlað að styðja við mannvirkjagerð og aðrar framkvæmdir félagasamtaka sem heyra til þriðja geirans svokallaða, s.s. björgunarsveitir og íþróttafélög, og hvetja til þess að félögin efli starfsemi sína eða bæti aðstöðu.

Flest þeirra félaga sem starfa að almannaheillum eru utan virðisaukaskattkerfisins og eiga því ekki möguleika á að fá endurgreiðslu innskatts vegna framkvæmda við mannvirkjagerð.

Með endurgreiðslukerfi veitir ríkissjóður félagasamtökum til almannaheilla fjárhagslegan stuðning við uppbyggingu aðstöðu og verði frumvarpið að lögum öðlast félög innan þriðja geirans rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fallið hefur til vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda sem miða að því að efla starfsemi eða bæta aðstöðu félaganna.

Flutningsmenn eru: Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Páll Magnússon, Vilhjálmur Árnason, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðmundur Andri Thorsson, Ólafur Ísleifsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Willum Þór Þórsson.

DEILA