Samkaup hljóta jafnlaunavottun

Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa.

Samkaup hf. hafa formlega hlotið vottun um að standast kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og leyfi Jafnréttisstofu til að nota jafnlaunamerkið 2019 – 2022. „Við erum ákaflega stolt af því að hljóta vottunina. Samkaup leggur ríka áherslu á að fylgja ákvæðum laga um jafna stöðu kynjanna og það er afar mikilvægt að algjör fullvissa ríki meðal starfsfólks um að það fái greidd sömu laun fyrir sama vinnuframlag, óháð kyni, kynferði, þjóðerni, aldri eða því hvar það er staðsett á landinu” segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa.

 

Alls starfa um eitt þúsund og þrjúhundruð manns hjá fyrirtækinu sem rekur sextíu verslanir víðsvegar um landið. Verslanirnar spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin og Iceland.

 Samkaup rekur verlsun bæði á Ísafirði og í Bolungavík. Jafnlaunavottuninni fylgir fullvissa um að starfsfólk fái greidd sömu laun fyrir sömu vinnu og jafnverðmæt störf.

Í fréttatilkynningu frá Samkaup segir að Samkaup leggi áherslu á jafnrétti kynjanna og að nýta til jafns styrkleika kvenna og karla þannig að hæfileikar, kraftar og færni allra starfmanna fyrirtækisins njóti sín sem best.

Ennfremur segir: „Gildi Samkaupa, Kaupmennska, Áræðni og Sveigjanleiki, eru hornsteinar í starfi Samkaupa og eru leiðarljós í að gera Samkaup að eftirsóttum vinnustað þar sem jafnrétti og jafnræði kynjanna er virt og að allir starfsmenn hafi jöfn tækifæri á öllum sviðum. Lykilatriði í velgengi Samkaupa felst í starfsfólki fyrirtækisins.“

DEILA