Laandvernd hefur sent frá sér fréttatilkynningu og mótmælir harðlega málflutningi sem fram kemur í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um hvalveiðar.
„Í fyrsta lagi eru þær forsendur sem skýrsluhöfundur gefur sér í útreikningum sínum af vistfræðilegum toga og þar með langt utan hans fagsviðs. Margir vistfræðingar telja þessar forsendur úreltar.
Í öðru lagi er fráleitt að spyrða saman náttúruverndarsamtök og hryðjuverk almennt og ekki síst í „faglegri“ skýrslu sem fjallar um hvalveiðar, hvað þá að hvetja til lagasetningar um hryðjuverk í samhengi við baráttu fyrir verndun umhverfisins. Raunveruleg hryðjuverk beinast að því að drepa almenna borgara í þágu tiltekins málstaðar. Barátta náttúruverndarsamtaka er friðsamleg.
Í þriðja lagi er sú ógn sem að okkur steðjar vegna rányrkju manna raunveruleg og þessi ógn kristallast í baráttu náttúruverndarsamtaka fyrir verndun hvala.
Stjórn Landverndar skorar á Hagfræðistofnun til að draga skýrsluna til baka og vinna hana upp á nýtt í samráði við vistfræðinga.“