Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman fjölda erlendra ríkisborgara sem eru búsettir hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2018.
Hlutfall erlendra ríkisborgara er misjafnt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 40% niður í engan skráðan.
Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, eða 22,3% og Vestfirðir koma næst með 15,5%. Alls voru 1.096 íbúar með erlent ríkisfang af 7.059 íbúum á Vestfjörðum. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi vestra eða 6,8%.
Súðavíkurhreppur er með hæsta hlutfallið á Vestfjörðum 25,6%. Það er fjórða hæsta hlutfallið á landinu. Næst er Bolungavík með 19,8%, þá Tálknafjörður 19,3% og Vesturbyggð 16,8%.
Mýrdalshreppur er með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara en alls eru 40% skráðra íbúa í Mýrdalshreppi með erlent ríkisfang eða 280 íbúar hreppsins af 687. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi eða 28,3% og Bláskógabyggð með 25,7%. Þess má geta að lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er í Árneshreppi en enginn íbúi sem er með skráða búsetu í hreppnum er með erlent ríkisfang.
Bolungarvíkurkaupstaður | 948 | 188 | 19,8% |
Ísafjarðarbær | 3.807 | 583 | 15,3% |
Reykhólahreppur | 256 | 11 | 4,3% |
Tálknafjarðarhreppur | 259 | 50 | 19,3% |
Vesturbyggð | 996 | 167 | 16,8% |
Súðavíkurhreppur | 199 | 51 | 25,6% |
Árneshreppur | 40 | 0 | 0,0% |
Kaldrananeshreppur | 103 | 14 | 13,6% |
Strandabyggð | 451 | 32 | 7,1% |
Vestfirðir | 7.059 | 1.096 | 15,5% |