Sannar gjafir frá Ísafirði fóru til barna víða um heim

Fréttatilkynning frá UNICEF á Íslandi:

Nú eins og síðastliðin jól eru Sannar gjafir UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna. Gjafir frá Íslandi bárust til barna um allan heim um síðustu jól og voru íbúar á Ísafirði duglegir að nýta þennan möguleika til að hjálpa börnum í neyð. Í fyrra voru sem dæmi 126.500 vatnshreinsitöflur  frá Ísafirði sendar til meðal annars til Mjanmar, Sómalíu og Haítí og útveguðu börnum þar hreint drykkjarvatn. Þeir 960 pokar af vítamínbættu jarðhnetumauki sem keyptir voru á Ísafirði í gegnum Sannar gjafir UNICEF hjálpuðu börnum sem þjást vegna vannæringar, meðal annars í Afganistan, Senegal og Bangladess.

Þetta eru einungis örfá dæmi um gjafir sem ferðuðust til barna í neyð í fyrra og stefnir í að enn fleiri börn muni njóta góðs af Sönnum gjöfum frá Íslandi þetta árið.

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð. Þær eru stórsniðugar jólagjafir, leynivinagjafir og jólakort fyrir vini og fjölskyldu en mikið úrval í öllum verðflokkum má finna á www.sannargjafir.is. Íslensku jólasveinarnir hafa líka uppgötvað hversu sniðugar gjafirnar eru í litla skó úti í glugga.

Gjöfin er keypt í nafni þess sem þú vilt gleðja og UNICEF sér síðan til þess að koma hjálpargögnunum til barna þar sem þörfin er mest.

Hlý teppi vinsælust

Vinsælasta gjöfin á Ísafirði í fyrra var hlytt teppi en alls voru keypt 60 teppi fyrir jólin. Teppin veita börnum hlýju í flóttamannabúðum þar sem kalt verður um nætur.

„Allar gjafirnar eiga það sameiginlegt að bæta líf barna sem þurfa á hjálp okkar að halda. Það er því yndislegt að sjá hversu margir kjósa að gefa Sannar gjafir um jólin,“ segir Ingibjörg Magnúsdóttir hjá UNICEF á Íslandi. „Í vefversluninni okkar má finna mikið úrval af gjöfum sem koma að góðum notum og geta bjargað lífi barna. Nú er til dæmis mikil þörf fyrir vítamínbætt jarðhnetumauk og næringarmjólk til að bjarga börnum sem eru alvarlega vannærð, til dæmis í Jemen.“

Það tekur enga stund að versla jólagjafirnar í vefverslun UNICEF, www..sannargjafir.is. Sannar gjafir eru í öllum verðflokkum og eru til dæmis sniðugar jólagjafir fyrir þá sem eiga allt, hlýleg jólakveðja til vina og fjölskyldu erlendis eða skemmtileg tækifærisgjöf til að gleðja leynivininn í vinnunni.

Hér má sjá nokkur dæmi að góðum jólagjöfum sem bæta líf barna:

Vatnshreinsitöflur galdra fram drykkjarhæft vatn

Milljónir barna hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni eins og við erum vön hér heima. Vatnshreinsitöflur eru sendar á svæði þar sem hreint vatn er af skornum skammti. Þessar bráðsniðugu töflur geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu vatni og með því komið í veg fyrir útbreiðslu lífshættulegra smitsjúkdóma.

 

Jarðhnetumauk gerir kraftaverk fyrir vannærð börn

Vítamínbætt jarðhnetumauk  gegnir lykilhlutverki á svæðum þar sem börn eru í lífshættu vegna vannæringar, meðal annars í Bangladess, Nígeríu og Jemen. Jarðhnetumaukið inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni sem börn þurfa og gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá pakka á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.

Ormalyf í jólapakkann

Ormalyf eru kannski ekki glamúrgjöfin í ár en ormalyf hafa sannarlega mikið notagildi! Á hverju ári látast skelfilega mörg börn af völdum vannæringar vegna sníkjudýra í meltingarvegi. Sníkjudýrin ræna börnin nauðsynlegum næringarefnum og gera þau bæði máttvana og varnarlaus gegn sjúkdómum. Lyfin hjálpa börnum að losna við sníkjudýrin og þau skelfilegu óþægindi sem þeim fylgja.

DEILA