Litli Hjalli: Rauð jól voru víðast hvar.

Séð til Norðurfjarðar auð jörð.

Jón G. Guðjónsson veðurathugunarmaður í Litli Ávík í Árneshreppi heldur úti síðunni Litli Hjalli og skrifar þar fréttir í hreppnum, einkum veðurfarslýsingar.

Í færslu gærdagsins ber þetta hæst:

Frá Litlu-Ávík auð jörð og lítill snjór í Örkinni.

Rauð jól voru víðast hvar.

Á mönnuðum veðurstöðvum Veðurstofu Íslands klukkan níu á morgnana er alltaf gefið upp svonefnt jarðlag, það er hvernig jörðin er, auð blaut, eða þurr, og eða snjólag ef snjór er á jörðu og snjódýpt mæld.

Nú á jóladagsmorgun klukkan níu 25 desember 2018 var gefin upp auð jörð á veðurstöðinni í Litlu-Ávík á Ströndum, og þar af leiðandi voru rauð jól eins og víða á landinu. Í fyrra voru hvít jól og snjódýpt mældist 26 cm. á jóladagsmorgun. Alhvít jól hafa nú oftast verið hér á Ströndum, en eftir lauslega athugun Jóns Guðbjörns veðurathugunarmanns í Litlu-Ávík, var auð jörð, rauð jól 1997- 2001 og 2002.

Frá Litlu-Ávík auð jörð og lítill snjór í Örkinni.

 

DEILA