Jólagjafir stjórnvalda

Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Pistill forseta ASÍ:

Við fengum að kíkja í jólapakka stjórnvalda í þessari viku. Á meðan þjóðin var upptekin við að greina dónatal á bar fór pakkaflóðið á Alþingi Íslendinga að mestu fyrir ofan garð og neðan en þar kennir ýmissa grasa.

Stjórnvöldum fannst nefnilega mikilvægt að lækka veiðigjöld á útgerðina en líka mjög mikilvæg að lögfesta síðasta dóm kjararáðs sem veitti kjörnum fulltrúum ríflegar launahækkanir. Næsta launahækkun þingmanna og helstu embættismanna ríkisins kemur svo til álita strax í júní á næsta ári. Það eru því engin áform um að vinda ofan af risa hækkuninni frá október 2016 eða frysta laun kjörinna fulltrúa í þrjú ár eins og ASÍ hefur lagt til. Þessu til viðbótar er verið að hækka framlög til stjórnmálaflokka og styrkja störf þeirra með fjölgun stöðugilda.

Nær hefði verið að veita auknu fé til bygginga húsnæðis fyrir tekjulágt fólk en stofnstyrkir sem ætlaðir eru til verkefnisins duga ekki fyrir fjölda umsókna. Það er því vilji til að byggja meira og hraðar til að leysa úr húsnæðisvandanum en stjórnvöld gera kleift. Nú er beðið niðurstöðu tveggja húsnæðisnefnda en við vitum hvar skóinn kreppir og stjórnvöld geta ekki fríað sig ábyrgð á neyðarástandinu í húsnæðismálum meðan beðið er niðurstöðu. Lágmark er að mæta þörfum og getu til að byggja hagkvæmt á meðan unnið er að langtímalausnum.

Í stuttu máli eru stjórnvöld lítið að gera til að létta róðurinn í kjarasamningaviðræðunum sem nú standa yfir og ljóst að auka þarf þrýstinginn verulega til hagsbóta fyrir vinnandi fólk. Róttækar tillögur þurfa að koma út úr skatta- og húsnæðisnefndum sem nú eru að störfum, tillögur sem raunverulega skipta sköpum fyrir almenning.

Ég get ekki látið hjá líða að minnast á uppsagnir hjá WOW í gær. Í samtölum mínum við formenn tveggja stéttarfélaga sem gæta hagsmuna þeirra sem fengu uppsögn er ljóst að félögin standa þétt við bakið á sínu fólki. Það er ömurlegt að vera sagt upp vinnunni skömmu fyrir jól og ég sendi starfsfólki og fjölskyldum stuðningskveðjur og vona innilega að úr rætist.

Góða helgi, Drífa

DEILA