Forsætisráðherra kaupir fyrsta rótarskotið

Landsbjörg.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækir Gróubúð, Grandagarði 1 í Reykjavík, einn af flugeldasölustöðum björgunarsveitanna í dag, föstudaginn 28 desember, klukkan 10.00.

Þar mun hún kaupa fyrsta Rótarskot björgunarsveitanna en um er að ræða nýja leið til þess að styrkja öflugt og mikilvægt sjálfboðaliðastarf björgunarsveitanna um land allt.

Rótarskot er ný leið til að styrkja öflugt og mikilvægt sjálfboðastarf björgunarsveitanna.

Hvert Rótarskot gefur af sér tré sem gróðursett er með stuðningi Skógræktarfélags Íslands í nýjan Áramótaskóg Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Allur ágóði af sölu Rótarskotanna rennur til björgunarsveitanna. Sölustaðir eru hjá björgunarsveitum um allt land.

 

 

DEILA