Erindi um innfjarðarrækjuveiðar

Pamela J. Woods.

Fimmtudaginn 13. desember mun Pamela J. Woods fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun flytja erindið Innfjarðarveiðar á rækju (Pandalus borealis) við Ísland: stofnmat sem tekur til greina vistfræðilega þætti á málstofu Hafrannsóknastofnunar. Meðhöfundar hennar eru Bjarki Þ. Elvarsson, Ingibjörg G. Jonsdóttir og Guðmundur Þórðarson.

Málstofan verður haldin í fyrirlestrarsal á 1. hæð Skúlagötu 4 og verður jafnframt streymt á Youtube rás stofnunarinnar.

Erindið verður flutt á ensku og hefst kl. 12:30. Öll velkomin.

Almennt hefur reynst erfitt að framkvæma stofnmat og koma fram með ráðgjöf fyrir stofn rækju Pandalus borealis við Ísland þar sem þessi tegund er stuttlíf, upplýsingar um aldursdreifingu eru ekki fáanlegar og þróun stofnstærðar virðist helst tengjast nýliðun. Síðustu tvo áratugi hafa upplýsingar sem safnað er með rannsóknarleiðangrum gefið til kynna að lífmassi rækju hafi minnkað, en þessi þróun hefur leitt til ákvarðanatöku um lokun veiðisvæða. Ástæða minnkaðs lífmassa gæti verið ofveiði en einnig vegna hækkandi hitastigs og aukins lífmassa og afráns þorsks, ýsu og lýsu yfir sama tímabil. Kynnt verður  aðferðarfræði þar sem stærðardreifing rækju er notuð við að framkvæma stofnmat og þar sem tekið er tillit til hitastigs og afráns. Líkanið, Gad t, verður svo notað til þess að meta núverandi aðferð við fiskveiðistjórnun.

DEILA