Almannatryggingar hækka um 3,6% – fæðingarorlof 15%

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað tíu reglugerðir um hækkun bóta almannatrygginga 1. janúar 2019. Hækkun bóta nemur 3,6% í samræmi við launa- og verðlagsuppfærslur fjárlaga og tekur til lífeyristrygginga, félagslegrar aðstoðar, foreldragreiðslna og greiðslna til lifandi líffæragjafa. Frítekjumörk og heimilsuppbót hækka sömuleiðis um 3,6%. Fjárhæðir atvinnuleysistrygginga hækka einnig um 3,6%.

Óskertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði hækka hins vegar um 80.000 kr. og verða 600.000 kr á mánuði. Hækkunin er 15%. Aukin framlög ríkisins vegna hækkunar hámarksgreiðslna fæðingarorlofs 1. janúar næstkomandi eru áætluð um 1,8 milljarður króna á ársgrundvelli.

Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra segir þessa hækkun mikilvæga og sýna í verki áherslur stjórnvalda á að efla stuðning við börn og barnafjölskyldur. „Við hækkuðum hámarksgreiðslurnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtalsverðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekjulágum foreldrum til góða.“ Ráðherra segir áfram verða unnið að því að styðja betur við foreldra í fæðingarorlofi og þar sé meðal annars horft til þess að lengja fæðingarorlofið. „Þetta er mikilvægt velferðarmál og eins vil ég nefna sérstaklega að þetta er tvímælalaust lóð á vogarskálar aukins kynjajafnréttis.

DEILA