Mjólk: innleystir 176 þusund lítrar fyrir 21,5 milljónir króna.

Mynd: Viðskiptablaðið.

Matvælastofnun innleysti  fyrir hönd ríksins, greiðslumark 5 framleiðenda samtals 175.850 lítra að upphæð 21.453.700 krónur. Það jafngildir 122 kr/lítra. Innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí, 1. nóvember og 1. nóvember ár hvert.

Matvælastofnun úthlutaði 43.963 lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 43.963 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 87.924 lítrum úr almennum potti. Tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 116 framleiðendum og var alls óskað eftir 2.152.844.999 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 49 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 24 framleiðendur.

Samkvæmt búvörusamningum, sem tóku gildi þann 1. janúar 2017, skulu framleiðendur sem teljast nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun hefur innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna skv. 10. gr. reglugerðar nr. 1181/2017 um stuðning við nautgriparækt og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

DEILA