229 fjölskyldur eru milljarðamæringar

Eignir og tekjur 2017. svar fjármálaráðherra.

Birt hefur verið svar fjármálaráðherra við fyrirspurnum Loga Einarssonar, alþm. um eignir og tekjur landsmanna árið 2017. Þar kemur fram að efsta 0,1% landsmanna, sem eru 229 fjölskyldur hafi átt í lok árs 2017 eignir að fjárhæð 237 milljörðum króna. Gerir það að jafnaði 1.034 milljónir króna á hverja þessara 229 fjölskyldna.

Eignamesta 1% landsmanna eru 2.290 fjölskyldur og áttu þær samtals 719 milljarða króna. Er meðaltalið þar 314 milljónir króna á fjölskyldu.  Fimm prósent fjölskyldnanna, 11.450 fjölskyldur, áttu samtals 1.648 milljarða króna. Hver fjölskylda átti að jafnaði 144 milljónir króna.

Þessi 5% fjölskyldnanna átti 42% alls eigin fjár landsmanna. Ríkasta 1% átti 18% eignanna og ríkasta 0,1% átti samtals 6%.

Þegar litið er á tekjurnar höfðu tekjuhæstu 5% samtals 22,6% teknanna árið 2017 eða um 400 milljarða króna. Það gerir að meðaltali um 35 milljónir króna í árstekjur. Tekjuhæstu 0,1% fjölskyldnanna höfðu samtals nærri 64 milljarða króna í árstekjur eða að jafnaði 279 milljónir króna hver þessara 229 fjölskyldna.

DEILA