Sé nægum þrýstingi beitt víkur umhverfisvernd

Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga.

Fréttatikynning frá Landssambandi veiðifélaga:

Landssamband veiðifélaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis að breyta fiskeldislögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrarleyfi til bráðarbirgða til allt að 20 mánaða. Lýsir Landsambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu.  Af umræðum undanfarna daga verður að teljast líklegt að þessi heimild verði notuð til að draga úr áhrifum úrskurða sem eru umhverfinu í hag. Er málum virkilega þannig komið að sé nægjanlegum þrýstingi beitt víki reglur um umhverfisvernd ?

Landssamband veiðifélaga minnir á að ekki eru liðnir nema nokkrir mánuðir síðan kynntar voru hugmyndir Hafrannsóknarstofnunar um 3.000 tonna „tilraunaeldi“ í Ísafjarðardjúpi. Virðist það vera gert gagngert til að komast framhjá áhættumati um erfðamengun sem hafði í raun lokað fyrir eldi frjórra norskra laxa í Djúpinu. Stuttu áður hafði álit Skipulagsstofnunar, sem lagðist gegn eldi frjórra laxa, verið dregið til baka eftir mikinn pólitískan þrýsting.

Eftir „velheppnaða“ herferð Landssambands fiskeldisstöðva gegn úrskurði Úrskurðarnefndar auðlinda og skipulagsmála má búast við að eldi frjórra laxa í Djúpinu verði næsta markmið, ásamt frekari tilslökunum á lögum um fiskeldi.

Landssamband veiðifélaga hvetur unnendur íslenskrar náttúru til þess að vera sérstaklega á verði gagnvart frekari tilslökunum á reglum er varða umhverfisvernd. Einnig þeirri tilhneigingu, að sé nægu pólitískum þrýstingi beitt víki umhverfisverndin alltaf.

 

DEILA