Brátt munu öll vötn renna til Dýrafjarðar

Lengd Dýrafjarðarganga í lok viku 35 var 3.453,6 m sem er 65,1 % af heildarlengd ganganna. Í lok vikunnar voru 231,5 m í hábunguna í göngunum og þegar henni verður náð munu öll vötn renna til Dýrafjarðar.

Byrjað var á útskoti H í vikunni og í lok vikunnar var eftir ein færa áður en komið er aftur í venjulegt snið. Að auki var fyrsta færa sprengd í öðru hliðarrýminu sem er í útskoti H en í útskoti H er tæknirými og snúningsútskot. Kubbabergið sem grafið hefur verið í undanfarið er komið upp fyrir þekju og er nú grafið í heillegu basalti.

Efnið úr göngunum var keyrt á haugsvæði til síðari nota. Unnið var við mölun á efni alla vikuna en efnið verður notað meðfram lögnum í göngunum.

Fyllt var að syðri sökklinum í Mjólká. Syðri sökkull nýju brúarinnar yfir Hófsá var steyptur á mánudeginum og klárað að slá upp fyrir nyrðri sökklinum og var hann tilbúinn undir steypu í lok vikunnar.

Í Dýrafirði var unnið við skeringu og vegfyllingu ásamt vinnu við að koma rafmagni og ljósleiðara að tengipunkti við munna.

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar syðri sökkull Hófsárbrúar var steyptur og þegar verið er að fjarlægja skanna sem er notaður til að skanna inn göngin.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA