Ingimar Aron áfram með körfuknattleiksliði Vestra

Ingimar sýndi miklar framfarir síðasta vetur.

Bakvörðurinn efnilegi Ingimar Aron Baldursson hefur samið við körfuknattleikslið Vestra um að leika með liðinu á næsta keppnistímabili, eins og kemur fram hjá Vestra. Ingimar Aron lék stór hlutverk með liðinu á síðasta tímabili, var í byrjunarliðinu í 26 leikjum af 27, og skoraði 11,6 stig, tók 2,9 fráköst og gaf 2,9 stoðsendingar. Þessi bráðefnilegi leikmaður tók miklum framförum og sýndi hvers hann er megnugur bæði varnarlega og sóknarlega síðastliðinn vetur. Hann fékk viðurkenningu á lokahófi Vestra fyrir mestu framfarirnar og var einnig valinn í 24 manna æfingahóp U-20 landsliðsins í vor. Auk þess skilaði Ingimar góðu starfi sem þjálfari í Krakkakörfu Vestra en það er æfingahópur 6 og 7 ára barna.

Sæbjörg

bb@bb.is

 

DEILA