Breiðadalsgöng lokuð milli miðnættis og 7:00 á morgnana

Vegagerðin hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður á nóttinni á virkum dögum, frá miðnætti til kl. 7:00. Vinnan hefst á miðnætti þann 13 júní (aðfaranótt fimmtudags).
Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með 2-3 vikum. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

 

Sæbjörg
sfg@bb.is

DEILA