Lokahóf meistaraflokks Körfuknattleiksdeildar Vestra

Verðlaunahafarnir f.v.: Ingimar Aron Baldursson, Nebojsa Knezevic, Nemanja Knezevic, Gunnlaugur Gunnlaugsson og Björn Ásgeir Ásgeirsson.

Föstudaginn síðasta var lokahóf meistaraflokks Körfuknattleiksdeildar Vestra haldið á Hótel Ísafirði. Á heimasíðu Íþróttafélagsins Vestra kemur fram að létt hafi verið yfir fólki, enda hefur liðið leikið frábærlega í vetur og sett markmið hafa náðst. Liðið hefur verið í toppbaráttu allt tímabilið, en hafði verið spáð 8. sæti í deildinni áður en keppni hófst.

Þorsteinn Goði Einarsson fékk sérstaka viðurkenningu frá leikmönnum meistaraflokks fyrir vinnu sína í kringum liðið á tímabilinu. Hann hefur aðstoðað liðið á öllum heimaleikjum í vetur og verið liðinu innan handar með stórt og smátt.

Veittar voru viðurkenningar í 6 flokkum til leikmanna liðsins, besti leikmaðurinn, efnilegasti leikmaðurinn, besti sóknarmaðurinn, besti varnarmaðurinn, mestu framfarirnar og dugnaðarforkur ársins.

Nemanja Knezevic var valinn besti leikmaður liðsins og hlaut hann einnig viðurkenningu sem besti varnarmaðurinn. Þetta tvennt kemur líklega fáum á óvart enda leiddi Nemanja 1. deildina lengi vel í framlagspunktum og var langfrákastahæsti leikmaður deildarinnar. Fáir leikmenn hafa jafn mikil áhrif á gang leiksins bæði í vörn og sókn og er hann afar vel að báðum titlunum kominn.

Besti sóknarmaðurinn var valinn Nebojsa Knezevic annað árið í röð. Þetta kemur væntanlega ekki á óvart heldur enda býr Nebojsa yfir gríðarlegum hæfileikum sóknarlega. Hann getur skorað stig af öllu tagi, frá troðslum í þriggja stiga körfur og allt þar á milli. Mikilvægast er þó að Nebojsa gerir aðra leikmenn betri í kringum sig og var hann stoðsendingahæsti leikmaður 1. deildar á tímabilinu.

Viðurkenningu fyrir mestu framfarirnar á tímabilinu fékk Ingimar Aron Baldursson. Hann hefur átt frábært tímabil og hefur vaxið mikið bæði sóknarlega og varnarlega. Þessi hæfileikaríki ungi piltur á framtíðina fyrir sér sem sést best á því að sama dag og lokahófið fór fram var hann valinn í 24 manna æfingahóp U-20 landsliðsins sem tekur þátt í A-deild FIBA Europe í sumar.

Björn Ásgeir Ásgeirsson hlaut nafnbótina efnilegasti leikmaðurinn. Björn Ásgeir er aðeins 17 ára gamall en sýndi og sannaði í vetur að hann getur risið undir stóru hlutverki. Hann átti flott tímabil og vakti varnarleikur hans sérstaka athygli. Yngvi Gunnlaugsson þjálfari liðsins kom sérstaklega inn á þennan þátt í máli sínu og benti á að Björn Ásgeir hafi iðulega fengið það vandasama hlutverk að dekka bandaríska leikmenn mótherjanna sem hann leysti vel af hendi. Björn Ásgeir var fyrr í vetur valinn í úrtakshóp U-18 ára landsliðs Íslands.

Dugnaðarforkur ársins var svo valinn Gunnlaugur Gunnlaugsson. Gunnlaugur er leikmaður sem leggur ætið allt í sölurnar inn á vellinum í keppni en ekki síður á æfingum. Slíkt viðhorf og elja er dýrmætur eiginleiki sem smitar út frá sér og hefur jákvæð áhrif á liðið sem seint verður metið til fulls. Gunnlaugur hefur ennig sinnt félagslegu starfi innan deildarinnar vel og er ætíð tilbúinn að leggja sitt af mörkum í þjálfun og dómgæslu hjá yngri flokkum.

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA