Kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ opnuð með pompi og prakt

Sjálfstæðisflokkurinn í Ísafjarðarbæ.

Kosningamiðstöð Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ var opnuð með pompi og prakt á föstudagskvöldið að Aðalstræti 24 á Ísafirði. Daníel Jakobsson, oddviti flokksins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona, fluttu ávörp og tónlistarmaðurinn Jónsi sá um að skemmta gestum með gítarspili og söng. Margt var um manninn en hátt í hundrað manns kíktu í heimsókn og þáðu léttar veitingar. Það var jákvæð stemning í hópnum og bjartsýni fyrir komandi kosningardegi. Kosningamiðstöðin verður opin frá kl. 16:00 – 18:00 til að byrja með en nýr opnunartími verður auglýstur eftir fyrstu helgina í maí.

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA