Atvinnuleysið 3 prósent

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í desember 2017, sem jafngildir 81,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.600 starfandi og 6.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3%.

Samanburður mælinga fyrir desember 2016 og 2017 sýna að vinnuaflið hefur annars vegar aukist um 4.700 manns en hins vegar lækkaði hlutfall þess af mannfjölda um 1,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 3.700 en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði þó um 1,5 prósentustig. Atvinnulausir eru um 1.000 fleiri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra jókst um 0,4 prósentustig. Alls voru 44.900 utan vinnumarkaður og fjölgaði þeim um 4.500 manns frá því í desember 2016 en þá voru þeir 40.400.

DEILA