Aðalfundur íbúasamtakanna Átaks, hverfisráðs Dýrafjarðar, verður haldinn í Blábankanum á Þingeyri á morgun, fimmtudaginn 14. desember klukkan 20.00. Allir íbúar 18 ára og eldri sem eiga lögheimili í Dýrafirði hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundum Átaks og eru hvattir til að mæta. Á dagskrá fundarins er:
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins og nefnda á liðnu starfsári.
- Umræður um reikninga félagsins.
- Breytingar á samþykktum félagsins.
- Kosning tveggja stjórnarmanna til 2ja ára.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
- Verkefni næsta árs.
- Önnur mál.
- a) Fjárfestingar áranna 2017 og 2018.
smari@bb.is