Stýrivextir verða óbreyttir samkvæmt ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans sem kynnt var í morgun. Stýrivextir verða því áfram 4,25 prósent. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í nóvemberhefti Peningamála hægir töluvert á hagvexti í ár og meira en bankinn spáði í ágúst. Spáð er 3,7% hagvexti í ár en í fyrra var hann 7,4%. Fer þar saman hægari vöxtur útflutnings, eftir hraðan vöxt undanfarin ár, um leið og nokkuð bætir í vöxt innflutnings.
Útlit er fyrir að verðbólga verði við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans um mitt næsta ár og verði það næstu árin. Það yrði nokkuð meiri verðbólga en hefur mælst síðustu þrjú árin. Undanfarið hafa miklar hækkanir húsnæðisverðs drifið verðbólguna áfram en verðhjöðnun verið ef húsnæðisverð er skilið frá mælingunni. Þar sem dregið hefur úr verðhækkun á húsnæði er það talið stuðla að minni verðbólgu ef sú þróun heldur áfram. Á móti kemur að áhrif hás gengis sem hafa haldið aftur af verðbólgu fjara út.
smari@bb.is