Bráðsmitandi hnerripest í hundum

Undanfarnar vikur hefur töluvert verið um væga öndunarfærasýkingu meðal hunda og katta á höfuðborgarsvæðinu og nú virðist hún vera að stinga sér niður úti á landi. Ekki er enn vitað um hvaða sýkingu er að ræða en rannsókn á sýnum stendur yfir á Tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum. Einkenni sýkingarinnar eru oftast hnerri og hósti sem gengur yfir á nokkrum dögum. Fá dýr hafa veikst alvarlega.

Í lok september bárust Matvælastofnun upplýsingar um mögulegan grun um smitandi öndunarfærasýkingu í hundum og köttum á suðvestur horni landsins. Matvælastofnun hóf strax að kanna útbreiðslu og nokkrum vikum síðar fóru að berast fleiri tilkynningar um gæludýr með slík einkenni. Virtist smit dreifast hratt milli dýra og helstu einkenni vera hnerri, mildur hósti og önnur væg einkenni frá efri öndunarvegi. Aðallega var um að ræða hunda, en einnig var tilkynnt um einstaka ketti sem hefðu fengið svipuð einkenni. Fá dýr virðast verða það veik að þau missi matarlyst eða fái hita, þó einstaka dýr sýni slík einkenni.  Í síðustu viku bárust fyrstu fréttir  um einkenni í hundum og köttum á Akureyri.

Þegar ljóst var að um bráðsmitandi sjúkdóm væri að ræða, óskaði Matvælastofnun eftir sýnum úr nokkrum hundum  og óskaði eftir því að Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum rannsakaði þau í því skyni að kanna um hvaða smitefni væri að ræða. Niðurstaða rannsóknanna liggur ekki enn fyrir, en ef orsökin finnst mun Matvælastofnun strax tilkynna um hana.

Eigendum gæludýra sem sýna einkenni þessarar hnerripestar er ráðlagt að forðast allt álag á dýrin og fylgjast náið með heilsu þeirra. Ef þau þróa alvarlegri einkenni, svo sem lystarleysi, slappleika, mikinn hósta eða hita að þá er rétt að hafa samband við dýralækni.

Athugið að til að forðast smit á milli dýra í biðstofu skal ekki fara með dýrið á dýralæknastofu án undangengins samráðs við dýralækni. 

bryndis@bb.is

DEILA