Komist hefur á samkomulag um kaup Innergex Renewable Energy á Alterra Power Corp. sem er stærsti hluthafinn í HS Orku. Frá þessu er greint á mbl.is. Bæði Innergex Renewable Energy og Alterra Power Group eru kanadísk orkufyrirtæki og það síðarnefnda ræður yfir 66,6% hlut í HS Orku. Vesturverk ehf. á Ísafirði sem áformar að Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði er í meirihlutaeigu HS Orku.
Kaupverðið nemur 1,1 milljarði Bandaríkjadala, eða tæpum 116 milljörðum íslenskra króna og fela í sér 25% reiðufé og 75% hlutafé í Innergex. Þau eru háð samþykki hluthafa Alterra.