Ráðist verður í ítarlegar greiningar á stöðu framhaldsskólanna

Ráðist verður í ítarlegar athuganir og greiningar á stöðu framhaldsskólanna um land allt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Gerð verður greining á einstökum landsvæðum eða klösum skóla, sem og greining á einstökum skólum með tilliti til styrkleika og veikleika þeirra. Að þeirri vinnu lokinni mun menntamálaráðherra ákveða hvort ástæða sé til að ráðast í  sameiningar skóla eða gera aðrar breytingar á starfsemi þeirra svo efla megi gæði náms, skilvirkni í starfsemi og þjónustu við nemendur.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur lokið greiningu á gögnum sem unnin voru um hugsanlega sameiningu á rekstri Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans. Ráðuneytið fékk einnig Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri til að leggja sitt mat á gögnin. Niðurstaða ráðherra er að ekki verði ráðist í að sameina rekstur skólanna að svo stöddu. Nauðsynlegt sé að gera ítarlegri athuganir á stöðu framhaldsskólanna í landinu og þróun í starfsemi þeirra á næstu árum meðal annars vegna fyrirsjáanlegra breytinga á nemendafjölda vegna styttingar náms til stúdentsprófs, stærð árganga á næstu árum, námsframboðs og annarra þátta.

DEILA