Basknesk hátíð í Dalbæ

Á föstudag eftir viku verður haldin basknesk hátíð í Dalbæ á Snæfjallaströnd. Það eru Ferðaþjónustan í Dalbæ og Snjáfallasetur sem standa fyrir hátíðinni í samstarfi við Baskavinafélagið á Íslandi. Það er vel við hæfi að halda hátíðina á Snæfjallaströnd, á söguslóðum baskavíganna.

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui flytja basknesk þjóðlög og sýnd verður kvikmyndin Baskavígin. Á undan sýningu myndarinnar spjallar framleiðandi hennar, Hjálmtýr Heiðdal um myndina ásamt Kristni Hrafnssyni.

DEILA