Austanátt og rigning með köflum

Veðurstofan spáir austanátt á Vestfjörðum í dag,  8-13 mk/ og rigningu með köflum, en suðaustan 5-10 m/s og úrkomuminna í kvöld. Hæg breytileg átt á morgun, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 15 stig.

Veðurstofan spáir austlægri átt á landinu í dag  5-13 m/s, en suðlægari eftir hádegi. Hvassara allra syðst á landinu í fyrstu. Rigning með köflum, en úrkomumeira suðaustan- og austanlands samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.

Hiti verður 8 til 17 stig, hlýjast norðaustantil.

DEILA