Rjúpan í djúpri lægð á Vestfjörðum

Rjúpnatalningum vorið 2017 er lokið. Vísbendingar eru um mikla fjölgun á rjúpi á öllu landinu nema á Vestfjörðum, Suðausturlandi og Austurlandi. Stofnbreytingar rjúpu 2016 til 2017 voru mismunandi eftir landshlutum. Fækkun reyndist vera á Vestfjörðum og Suðausturlandi, kyrrstaða á Austurlandi en aukning annars staðar. Miðað við ástand rjúpnastofnsins frá síðustu aldamótum þá er stærð hans í meðallagi eða aðeins yfir meðallagi  í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum, þar er hann enn í djúpri lægð.

Veiðiþol rjúpnastofnsins verður metið í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna nú í sumar. Að auki mun þá liggja fyrir útreikningar á afföllum rjúpna 2016 til 2017 og mat á veiði.

DEILA