Launþegum fjölgar mest í byggingariðnaði og ferðaþjónustu

Byggingageirinn ásamt ferðaþjónustu kallar á aukið vinnuafl.

Á 12 mánaða tímabili, frá maí 2016 til apríl 2017, voru að jafnaði 17.079 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 790 (4,8%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 182.800 einstaklingum laun sem er fjölgun um 8.500 (4,9%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum hefur hins vegar fækkað í sjávarútvegi.

Í apríl voru 2.478 launagreiðendur og um 11.500 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 eða um 16% samanborið við apríl 2016. Sömuleiðis voru í apríl 1.614 launagreiðendur og um 25.100 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 3.400 eða um 16% á einu ári. Launþegum hefur á sama tíma fjölgað um 8.500 eða um 5%.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

DEILA