Listaháskólanemar í gömlu smiðjunni

Róbert Daníel Kristjánsson að steypa verk eftir nemendur úr myndlistardeild og vöruhönnunardeild í Listaháskóla Íslands. Frá vinstri: Alma Balmes, Signý Jónsdóttir, Rúna Thors (kennari), Inga Kristín Guðlaugsdóttir, Sylvía Lind Jóhannesdóttir, Íris Indriðadóttir. Mynd: Carl Boutard

Vélsmiðja Guðmundar Sigurðssonar er eitt af krúnudjásnum Dýrafjarðar. Smiðjan var stofnuð af Guðmundi árið 1913 og í henni ráku svo hann og síðast sonur hans Matthías vélsmiðjuna allt til ársins 1995. Síðan þá hafa helstu innanbúðarmenn í smiðjunni sem slíkri verið Kristján Gunnarson vélsmiður og Róbert Daníel sonur hans, sem hafa viðhaldið handverkinu við að steypa í mót upp á gamla mátann. Byggðasafn Vestfjarða tók við varðveislu smiðjunnar árið 2014. Þá var fljótlega farið að kanna hina ýmsu möguleika á að hafa smiðjuna áfram í rekstri og var m.a. haft samband við Listaháskóla Íslands og möguleikar smiðjunnar kynntir til kennslu og listsköpunar í myndlist og hönnun.

Hafa nú nemendur í myndlistar- og vöruhönnunardeild LHÍ verið við störf í smiðjunni frá því á föstudag og verða þeir út þessa viku. Hópurinn sem dvelur á Þingeyri telur 16 nemendur og er von á öðrum hópi næsta haust og vonir bundnar við að samstarf safnsins við listaháskólans verði til framtíðar.

Nemendahópurinn hefur sannarlega sett svip sinn á bæjarbraginn á Þingeyri og var til að mynda í gærkvöldi opið hús í félagsheimilinu þar sem íbúum gafst kostur á að bera augum það sem listnemarnir hafa unnið að í smiðjunni. Mikið fjör var í félagsheimilinu en harmonikkuklúbburinn sem æfir saman á þriðjudögum yfir vetrarmánuðina var með lifandi tónlist sem rann ljúft ofan í mannskapinn.

annska@bb.is

 

DEILA