Bloggið

Einar Kristinn Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherraLátið eins og ekkert sé

  Ein afdrifaríkustu mistök Vinstri hreyfingarinnar græns framboð urðu þegar flokkurinn sveik eitt sitt helgasta kosningaloforð og kastaði ESB andstöðunni fyrir róða. Flokkurinn hafði notið álits fyrir stefnufestu fram að því; einnig hjá mörgum pólitískum andstæðingum. Með þessum brigðum við sitt stóra loforð um andstöðuna við ESB, er þessi orðstír flokksins nú ...
Meira

Grímur Atlason, fyrrv. bæjarstjóri í BolungarvíkAdjö

Grímur segir bless. Eyjan og ég höfum ekki átt margt sameiginlegt um nokkuð langt skeið en ákváðum að tóra saman – ekki þó fyrir börnin. En nú er komið alveg nóg.
Meira

Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri á ÍsafirðiÞað er hægt að rokka, hjóla, skipta um dekk og fara á veiðar í þjóðbúningi

Félagar í Þjóðbúningafélagi Vestfjarða sjá spaugilegu hliðina á tilverunni og hafa gefið út dagatal með myndum af fólki í Íslenskum þjóðbúningum. Það er markmið félagsins að vekja áhuga fólks á þjóðbúningnum og hvetja sem flesta til að eignast slíkan búning og nota hann við sem flest tækifæri.        Rúna  þeysir um miðbæinn ...
Meira

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, veitingamaður í BolungarvíkHeima

Blessuð sólin hefur varla sest við sjóndeildarhringinn eftir að ég kom heim. Geislar hennar hafa baðað byggðarlagið og þó svo að örlítið kaldur norðanvindurinn bíti kynnar skiptir það engu máli. Vertinn hefur auðvitað verið á faraldsfæti og spókað sig hér og þar í bænum svona eins og gengur. Ég hef fengið ...
Meira

Gunnar Þórðarson, viðskiptafræðingur á ÍsafirðiGrein í Fiskifréttum

  Að draga kanínu úr hattiStjórnarsinnar ræða um fyrirhugaðar breytingar á stjórn fiskveiða eins og það muni auka tekjur og styrkja sjávarbyggðir.  Allir gera sér grein fyrir að auðlindin er takmörkuð og breytingar á fiskveiðilöggjöf auka ekki veiðar.  Auki breytingar nýliðun í útgerð hlýtur það að ýta núverandi aðilum til hliðar ...
Meira

Baldur Smári Einarsson, bæjarfulltrúi í BolungarvíkFréttir af fuglum og pörum

Frá thví ég settist sídast vid tölvuna hafa lidid 3 golfdagar og mörg falleg höggin verid slegin á Islantilla. Á mánudaginn var keppt í 4 manna Texas Scramble og lék lidid mitt á 73 höggum eda 1 höggi yfir pari brúttó sem thýddi 6 undir pari nettó. Ég var ekki ad ...
Meira

Þorleifur Ágústsson, líffræðingur á ÍsafirðiUngi bóndinn fyrir norðan og kínverjinn sem ekki má kaupa landspildu á öræfum.

Fyrir mörgum árum síðan ákvað reykvískur ungur maður að flytja norður á land og hefja búskap. Ekki var þó áhugi á búskap til kominn vegna fyrri reynslu eða þekkingar á búskaparháttum almennt. Hann hafði aldrei í sveit komið en líklegast ímyndað sér rómantíkina sem búskapnum fylgdi. Kannski las hann Dalalíf Guðrúnar ...
Meira

Albertína Elíasdóttir, verkefnastjóri á ÍsafirðiHætt hér - byrjuð aftur á gamla staðnum

Byrjuð hér: http://vestfirdingurinn.blogspot.com
Meira

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, garðyrkjustjóri ÍsafjarðarbæjarÞað er þetta með "fræga fólkið"

Það er mikið búið að ræða komu Manfred Mann earth band til Íslands, að vísu var Manfred víst ekki með, en einhverjir félagar hans.  Ég hef reyndar hitt þann ágæta mann og rætt við hann.  Og reyndar fleiri slíka.Ég var í Glasgow árin frá 1964-6 með hléum.   Það var reyndar söguleg ...
Meira

Ingólfur H. Þorleifsson, varabæjarfulltrúi í ÍsafjarðarbæAð sjálfsögðu á að fella þetta niður

Verði þetta niðurstaðan, sem ég vona svo sannarlega þá eiga þeir þingmenn sem samþykktu þessi pólitísku réttarhöld að segja af sér. Það er ljóst að á bak við þessar ákærur liggur ekkert nema pólitískt hatur á Sjálfstæðisflokknum. Geir H. Haarde á allt annað skilið frá þjóðinni en að vera dreginn fyrir landsdóm ...
Meira

Ylfa Mist Helgadóttir, húsmóðir í Bolungarvíkjanúarpælingar um ekkert

Hér eins og annars staðar snjóar og hlánar, frýs og rignir og kannski allt á sama sólarhring. Flug liggur niðri oft og tíðum og fólk mokar stéttarnar sínar tvisvar á dag. Nema ég. Ég nenni því ekki. Fátt þykir mér jafn tilgangslaust og að moka snjó. Nema ég sé nokkuð viss ...
Meira

Hallur Magnússon, framkvæmdastjóri í ReykjavíkFramsókn faglegust í ESB?

Framsóknarflokkurinn var um langt árabil faglegasti stjórnmálaflokkurinn þegar unnið var í stefnumótun um aðildarumsókn eða aðildarumsókn ekki að ESB.  Framsóknarflokkurinn vann undirbúning Evrópustefnu sinnar á árabilinu 2001 til 2009 afar faglega.Í kjölfar afar vandaðrar greiningarvinnu Framsóknarflokksins í aðdraganda flokksþings árið 2005 var ljóst að klár meirihluti Framsóknarmanna vildu skoða aðildarumsókn að ...
Meira

Helga Vala Helgadóttir, blaðamaður í ReykjavíkKvennafangelsi Arnarholti?

Kvennafangelsið í Kópavogi er algjör skandall. Það er skelfilega vondur staður til að vista fanga því aðstaðan þar er nákvæmlega engin. Ekkert er þar um að vera, útisvæðið er smánarlega lítið og fyrir almannaaugum, læknisherbergið minnir á kústaskáp og það er enginn möguleiki fyrir konur sem afplána langa dóma að fá ...
Meira

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur í ReykjavíkMaíhitinn liggur lágt

Sló til fróðleiks á meðalhitann í Reykjavík fyrstu 15 daga mánaðarins og eins fyrir Akureyri.  Kuldi síðustu 2 daga kemur með fullum þunga og reynist hitinn vera á báðum stöðum nærri 2 stigum undir "kalda" meðaltalinu frá 1961-1990.  En við erum að tala um maí.  Í engum einum almannaksmánuði er stígandi ...
Meira

Jón Bjarnason, þingmaður VG í NV-kjördæmiSjálfstæðisbaráttan er eilíf - 1. maí ávarp í Grundarfirði

  Makríldeilan við ESB, hótanir og yfirgangur færa okkur best heim sanninn um að við höfum ekkert að gera inn í þetta ríkjasamaband. Því fyrr sem við stöðvum þessa vitlausu umsókn og drögum hana til baka því betra. Við þurftum að berjast fyrir sjálfstæði okkar á sínum tíma. Það tók okkur ...
Meira

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ÍsafjarðarbæjarSveitarstjórnarmál, 26. landsþing 23. mars

Árlega halda sveitarstjórnarmenn á Íslandi landsþing undir merkjum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á morgun þann 23. mars höldum við landsþing á Hótel Natura (Loftleiðir). Þingið hefst kl. 9:30 og stendur allan daginn. Öll 75 sveitarfélögin á Íslandi eiga sína fulltrúa á landsþingum og alltaf er góð mæting. Lýðræðismál, efling sveitarstjórnarstigsins og notendastýrð ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli