 Sölvi G. Gylfasson lék lykihlutverk í leik liðanna á síðasta ári. Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson. |
bb.is | 19.05.2012BÍ/Bolungarvík mætir Breiðabliki
BÍ/Bolungarvík drógst á móti Breiðabliki í 32 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli 6. eða 7. júní og geta Blikar þá náð fram hefndum en eins og kunnugt er sló lið BÍ/Bolungarvíkur þá grænklæddu út í 16 liða úrslitum keppninnar á síðasta ári. Þá voru Blikar ríkjandi Íslandsmeistarar og því þótti sigur BÍ/Bolungarvíkur óvæntur.
Leiknum í fyrra lauk með 4-1 sigri BÍ/Bolungarvíkur, en þeir skoruðu þrjú mörk í framlengingu. Innkoma Sölva G. Gylfasonar reið baggamuninn í þeim leik, en hann kom inná þegar skammt var eftir af venjulegum leiktíma og skoraði tvö mörk.
Af öðrum áhugaverðum viðureignum í 32-liða úrslitum má nefna leik ÍA og KR sem fer fram á Skipaskaga, og suðurnesjaslag Grindavíkur og Keflavíkur.
gudmundur@bb.is