 Skjaldbökur þykja ekki meðal röskustu dýra. |
bb.is | 20.06.2007Höfðu afskipti af skjaldböku á Skutulsfjarðarbraut
Lögreglumenn á Ísafirði þurftu að hafa afskipti af skjaldböku sem gekk hægum en öruggum skrefum norður Skutulsfjarðarbraut á tólfta tímanum í dag. Ökumaður tók frammúr skjaldbökunni á fullkomlega löglegan hátt að því best er vitað, enda er 60 km/klst hámarkshraði á veginum og ólíklegt að dýrið hafi náð þeim hraða. „Skjaldbökunni var boðið far á lögreglustöðina á Ísafirði hvar hún hvíldi lúin bein. Ekki er vitað hvaðan skjaldbakan kom en grunur leikur á að hún hafi stungið eiganda sinn af. Náttúrustofa Vestfjarða fékk dýrið til varðveislu, en eins og flestir vita er innflutningur slíkra dýra bannaður“, segir í tilkynningu frá lögreglu.
halfdan@bb.is