Svipmyndir

Látið vita

Látið vita af mannfagnaði
eða sendið inn myndir

 Lesendur BB-vefjarins eru hvattir til að láta vita af myndvænum fagnaði af hvaða tagi sem er, svo sem afmælisveislum, árshátíðum og brúðkaupum, gæsagildum og steggjastandi, lautarferðum, götugleði og þorrablótum. Þá er ekki að vita nema ljósmyndari komi og taki myndasyrpu til birtingar hér á vefnum.

Einnig er gott og þakkarvert að fá sendar myndasyrpur frá slíkum viðburðum en þá verða myndirnar að vera mjög góðar og skýrar. Hafið samband varðandi stafrænar myndir, stærð þeirra og sendingu, þannig að tryggt sé að hægt verði að nota þær. Helst verða líka að fylgja nöfn þeirra sem eru á myndunum og vitneskja um samþykki þeirra fyrir birtingu.

Það má fólk líka vita, að þegar ljósmyndari Bæjarins besta er við störf í mannfagnaði, þá má allt eins búast við birtingu. Ef vera kynni að einhver vildi ekki að mynd af honum birtist, þá nefnir hann það að sjálfsögðu. Hins vegar er fátítt að fólk á góðri og glaðri stund vilji ekki láta taka eða birta af sér mynd!

Sendið ábendingar um myndverðan mannfagnað í netpósti til Bæjarins besta eða hringið í síma 456 4560.


Herrakvöld BÍ/Bolungarvíkur

11.05 2012 – Karlalið BÍ/Bolungarvíkur fékk myndarlega fjárstyrki síðastliðið föstudagskvöld þegar herrakvöld félagsins var haldið í Guðmundarbúð á Ísafirði. Auk þess að hita upp fyrir sumarið og hlusta á ræður þjálfara og leikmanna, var haldið uppboð á treyjum þekktra knattspyrnumanna. Treyjur leikmanna á borð við Gylfa Sigurðsson, Emil Hallfreðsson og Ísfirðinginn ...
Meira

Hlífarsamsætið 2012

11.03 2012 – Húsfyllir var á Hlífarsamsætinu sem haldið var í Frímúrarasalnum á Ísafirði á sunnudag. „Samsætið gekk vonum framar, eins og alltaf. Ætli það hafi ekki verið um 170-180 manns sem sóttu það,“ segir Anna Karen Kristjánsdóttir, formaður Kvenfélagsins Hlífar. Að venju var boðið upp á skemmtidagskrá en þar var ...
Meira

Grímuball KFÍ

10.03 2012 – Fjöldi manns skemmti sér á grímuballi Ísfólksins, stuðningsfólks Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar sem haldið var í fjórtánda sinn á laugardag. Ballið fór fram í Krúsinni og hinir þrautreyndu skífuþeytar Rúnar Örn Rafnsson og Víðir Arnarson héldu uppi stuðinu. Meirihluti ballgesta var klæddur í hina ýmsu búninga en meðal gesta mátti ...
Meira

Árshátíð Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

03.03 2012 – Góð stemmning var á árshátíð Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um helgina þegar heilbrigðisstarfsfólk og makar þeirra skemmtu sér saman. Um 150 manns mættu á árshátíðina sem var í fyrsta skiptið haldin í Félagsheimilinu í Bolungarvík. Kristján Freyr Halldórsson var veislustjóri að þessu sinni. Skemmtinefndin fór á kostum líkt og venjulega ...
Meira

Mikið fjör á þorrablóti í Holti

18.02 2012 – Óvenju fjölmennt var á hinu árlega þorrablóti í Holti í Önundarfirði á laugardag en það eru íbúar í dreifbýli í firðinum sem sjá um framkvæmd blótsins. „Ég held að það hafi aldrei verið eins margir og í ár en það voru um 140 manns. Þetta var einstaklega vel ...
Meira

Sléttuhreppingar blótuðu þorra

18.02 2012 – Um 130 manns sóttu þorrablót Áttahagafélags Sléttuhrepps sem haldið var í félagsheimilinu í Hnífsdal á laugardag. Að sögn Bergmanns Ólafssonar gekk blótið mjög vel fyrir sig, en Bergmann átti sæti í skemmtinefnd að þessu sinni. Skemmtinefndin setti upp leikþátt í leikstjórn Soffíu Vagnsdóttur, en þemað var Hornstrandarferðir. „Það ...
Meira

Góð stemmning á Stútungi

11.02 2012 – Um 160 manns mættu á Stútung, árlega vetrargleði Önfirðinga, sem haldinn var í íþróttahúsinu á Flateyri á laugardagskvöld. „Það var rosalega gaman. Þetta gekk allt mjög vel og það var mikil stemning í salnum,“ segir Pálfríður Ása Vilhjálmsdóttir, einn af skipuleggjendunum. Að hennar sögn mætti megnið af bæjarbúum ...
Meira

Þorrablót Súgfirðinga í Reykjavík

10.02 2012 – Metþátttaka var á þorrablóti Súgfirðinga í Reykjavík sem haldið var á föstudag í Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík, en um 152 manns mættu á blótið að þessu sinni. „Blótið gekk mjög vel og það hafa aldrei mætt svona margir frá því að brottfluttir Súgfirðingar fóru að halda þorrablót í Reykjavík,“ ...
Meira

Grunnvíkingar blóta þorra

11.02 2012 – Hátt í hundrað manns sóttu þorrablót Grunnvíkingafélagsins sem haldið var í félagsheimilinu í Bolungarvík á laugardag. „Þetta heppnaðist mjög vel og það var virkilega gaman,“ segir Matthildur Guðmundsdóttir sem sat í skemmtinefnd. Að venju var boðið upp á heimatilbúin skemmtiatriði og að kenndi þar ýmissa grasa. „Við tókum ...
Meira

Súgfirskar konur buðu til þorrablóts

04.02 2012 – Súgfirðingar blótuðu þorra í þétt setnu félagsheimilinu á Suðureyri á laugardagskvöld. Hefð er fyrir því á Suðureyri að konur á staðnum standi fyrir þorrablóti annað hvert ár og svara karlarnir fyrir sig hin árin með góublóti. Súgfirðingar gerðu krásum troganna góð skil og sungu undir borðum á milli. ...
Meira

Góð stemmning á Sólarkaffinu

27.01 2012 – Árvisst Sólarkaffi fór fram í Iðnó í Reykjavík föstudagskvöldið 27. janúar. Bryddað var upp á ýmsum nýjungum þótt gamlar hefðir væru í hávegum hafðar. Ekki var raðað til borðs heldur verður frjálst að velja sér sæti eða að vera laus og liðugur. Með þessu var ætlunin að skapa ...
Meira

Sunnukórsballið 2012

28.01 2012 – Hátt í hundrað manns sóttu hið árlega Sunnukórsball var haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardagskvöldið 28. janúar. Sunnukórinn flutti fimm lög á fögnuðinum og voru þrjú þeirra tileinkuð sólinni. Er það venja við þetta tækifæri að syngja einhver sólarlög því Sunnukórinn heitir jú eftir sólinni og var ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli