Pistlar

Árni Guðmundsson | 01.11.11 | 14:12 Stöndum saman í baráttu gegn einelti

Mynd með frétt Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum Degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom ...
Meira


Gunnar Þórðarson | 27.10.11 | 11:17 Rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi

Mynd með frétt Undirritaður hefur haldið upp vörnum fyrir núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, sem byggt er á aflahlutdeildarkerfi þar sem heimildum er úthlutað sem hlutfalli af leyfilegum ársafla. Kerfið viðheldur hagkvæmni og eykur verðmætasköpun í sjávarútvegi, sem er okkur Íslendingum nauðsynlegt. Höfundi hefur oft verið legið á hálsi að ósekju að ganga erinda LÍÚ ...
Meira

Eggert Stefánsson | 21.10.11 | 14:24 Spurningin

Mynd með frétt Á hinum ágæta fréttavef bb.is hefur lengi verið dálkur, nefndur Spurningin. Þar eru lesendur spurðir spurninga um allt milli himins og jarðar, gjarnan um eitthvað sem hæst ber hverju sinni. Oft hefur mér fundist vanta fleiri svarmöguleika en já eða nei, margar spurningar þess eðlis að ég hef ekki getað svarað ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 20.10.11 | 15:34 Ríkið gefur 9 milljarða króna vegna makrílveiða sumarsins

Mynd með frétt Stjórnvöld meðhöndla útgerðarmenn með silkihönskum á sama tíma og landsmenn bera byrðarnar af bankahruninu. Makrílveiðar sumarsins eru einn mesti gróðavegur sem um getur um árabil. Verðið er hátt og vinnslukostnaður fremur lítill þegar litið er til afurðaverðs erlendis. Ætla má að ríkissjóður hefði haft um 9 milljarða króna í tekjur fyrir ...
Meira

Lýður Árnason | 19.10.11 | 09:22 Þegar þingmaður hittir ömmu sína

Mynd með frétt Fyrrum sjávarútvegsráðherra og núverandi þingmaður, Einar K. Guðfinnsson, finnur að stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum í nýlegum pistli á BB. Átelur hann mjög að ekki sé farið að tillögum sáttanefndar sem skipuð var af Jóni Bjarnasyni og afleiðingin sé frumvarp sem ekki sé á vetur setjandi. Vissulega er ég sammála ...
Meira


Einar Kristinn Guðfinnsson | 14.10.11 | 16:32 Einstakt sögulegt tækifæri

Mynd með frétt Góð tækifæri ganga mönnum stundum úr greipum fyrir sakir mistaka og yfirsjóna. En svo breytast aðstæður og enn á ný blasa tækifærin við; ef menn svo reyna að grípa þau. Þetta er staðan sem ríkisstjórnin er komin í. Hún glutraði niður sögulegu tækifæri til þess að skapa mikla almenna samstöðu um ...
Meira

Ólafur Bjarni Halldórsson | 10.10.11 | 13:27 „Látum þá borga og verum öll vinir“

Mynd með frétt Það er fróðlegt að fylgjast með hvernig ýmsir málsmetandi menn sjá fyrir sér skjóta lausn á deilu sem er jafngömul því kerfi sem mikilvægasti atvinnuvegur okkar, sjávarútvegurinn, starfar eftir. Síðast komu fram fyrrverandi ritstjóri blaðs sem lengstum var vel virt og fyrrverandi stórathafnamaður og lögðu til að það kerfi sem við ...
Meira


Ásmundur Einar Daðason | 05.10.11 | 10:31 Skjaldborg um verðtrygginguna?

Mynd með frétt Eitt þeirra mála sem Alþingi afgreiddi nú í september var frumvarp sem gerir Íbúðalánasjóði kleift að bjóða upp á óverðtryggð útlán og jafnframt að veita sjóðnum heimild til að slík útlán beri breytilega vexti. Mikil samstaða var á þingi um þetta mál. Hins vegar er mikilvægt að fram komi að hér ...
Meira

Agnes Ósk Marzellíusardóttir | 29.09.11 | 16:29 Sérhver persóna er venjuleg af því að hún er öðruvísi

Mynd með frétt „Það er fólkið sem, á einn eða annan hátt er öðruvísi, sem verður fyrir barðinu á einelti“. - Þessa alhæfingu hef ég heyrt frá mörgum en aldrei getað skilið. Hver er ekki öðruvísi? Hvað er það að vera venjulegur? Er einhver svo venjulegur að hann er ekki öðruvísi? Eitt get ég ...
Meira


Úlfar B Thoroddsen | 19.09.11 | 09:20 Yfirlýsing sem hefði átt að bíða

Mynd með frétt Enn er fyrirhuguð vegagerð samkvæmt B-tillögu í umræðunni, og ekki að góðu. Enn mætir tillagan andstöðu æðstu ráðamanna sem að málinu koma. Gerist það þrátt fyrir eindreginn stuðning all flestra íbúa í Barðastrandarsýslum við tillöguna og reyndar flestra Vestfirðinga og þeirra sem láta sig málið varða.
Meira

Ólína Þorvarðardóttir | 14.09.11 | 13:11 Hvaða leið er fær?

Mynd með frétt Nýlega kvað innanríkisráðherra upp úr með að hann hefði hug á að tengja Barðstrendinga við þjóðvegakerfið með því að fara svokallaða D-leið um Ódrjúgsháls og Hjallháls með fyrirheiti um að göng undir Hjallháls verði sett á samgönguáætlun til ársins 2022. Eins og við mátti búast hafa íbúar lýst vonbrigðum með þessi ...
Meira


Hildur Jakobína Gísladóttir | 31.08.11 | 09:41 Ert þú í ofbeldissambandi? - Við getum hjálpað!

Mynd með frétt Rannsóknir sýna að þegar kreppir að verður meira um heimilisofbeldi en áður. Þessi staðreynd á við um Ísland eins og önnur lönd. Ofbeldi er líkamlegt, andlegt og kynferðislegt en sumir vilja líka meina að það sé til fjárhagslegt ofbeldi. Ef þú kannast við eftirfarandi hegðun af hendi maka þíns þá ert ...
Meira

Eiríkur Finnur Greipsson | 17.08.11 | 13:32 Bjartsýni?

Mynd með frétt Án efa eru fjölmargir íbúar í Ísafjarðarbæ búnir að eiga gott sumarleyfi. Sumarleyfin hjálpa fólki til að styrkja tengsl við vini og kunningja, en ekki hvað síst til að styrkja fjölskylduböndin. Við köllum þetta líka stundum að „hlaða batteríin.“ Vonandi verður sú hleðsla nýtt til enn frekari uppbyggingar og sóknar á ...
Meira


Jón Svanberg Hjartarson | 28.07.11 | 13:05 Að gera hlutina vel – en fólk að fíflum!

Mynd með frétt Í frétt á vef bb.is í byrjun apríl var fjallað um atvinnumálefni Flateyrar í kjölfar gjaldþrots fiskvinnslunnar Eyrarodda. Í fréttinni var haft eftir Hjalta Árnasyni, lögfræðingi Byggðastofnunar, að ekki mætti vænta niðurstöðu fyrr en „..eftir páska í það fyrsta.“ hvað varðaði sölu eigna úr þrotabúinu. Í sömu frétt kom eftirfarandi fram:
Meira

Kristinn H. Gunnarsson | 21.07.11 | 11:49 Ámælisverð löggæsla í Reykjavík

Mynd með frétt Lögreglan í Reykjavík stendur fyrir sérkennilegri löggæslu um þessar mundir. Hún hefur tekið upp á því að fylgjast með úr fjarska vandræðum ökumanna sem finna ekki bílastæði og leggja svo til atlögu og dreifa sektum á fjölda bifreiða fyrir löglega stöðu þeirra. Þetta háttalag lögreglunnar minnir eiginlega meira á áreiti við ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 12.07.11 | 13:42 Markaðsverð kvóta og ný úthlutun

Mynd með frétt Aftur hefur lægt eftir snarpan stormsveip í flestum fjölmiðlum landsins gegn öllum breytingum á kvótakerfinu. Í nokkra daga var látið eins og 4 hagfræðingar og einn viðskiptafræðingur væru handhafar sannleikans. En svo er ekki. Allt frá 1998 hefur um ¾ þjóðarinnar verið óánægður með kerfið samkvæmt könnunum Gallups. Fjórðungur kjósenda hefur ...
Meira

Kristinn H. Gunnarsson. | 08.07.11 | 14:57 Gallar í gagnrýni OECD

Mynd með frétt Sérfræðingar OECD segja í nýjustu skýrslu sinni um Ísland að stjórnvöld eigi að fara varlega í breytingar á kvótakerfinu sem kunna að veikja kerfið sem notað er við stjórn fiskveiða. En reiknaður er hlutur hvers rétthafa til veiða úr tilteknum fiskistofni og fær hann að veiða það hlutfall af magni hvers ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 06.07.11 | 15:46 Rangfærslur á RÚV

Mynd með frétt Laugardagskvöldið 2. júlí var frétt í sjónvarpsfréttum RÚV um könnun sem Capacent Gallup hafði gert um Þjóðkirkjuna. Spurt var um störf biskups, aðskilnað ríkis og kirkju, um traust til þjóðkirkjunnar og áform um úrsögn úr henni. Seint verður sagt að svörin hafi verið fagnaðarefni og víst er að álit þjóðarinnar á ...
Meira

Kristinn frá Gufudal | 05.07.11 | 11:25 Áskorun á Vegagerðina

Mynd með frétt Áður hef ég rökstutt ítarlega þá skoðun varðandi leiðarval í Reykhólahreppi, að vegfylling skuli gerð yfir Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð. Að mínu áliti ber Vegagerðinni að athuga veglínu í flæðarmáli neðan sjávarbakka við Þorskafjörð í landi Þórisstaða, Grafar og Hallsteinsness. Þar eru víða gróðurlitlir melar og klettar í um 30-40 m ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 29.06.11 | 14:27 OECD bendir á alvarlega galla kvótakerfisins

Mynd með frétt Í nýjustu skýrslu OECD um Ísland er, þegar grannt er skoðað, mjög athyglisverður kafli um kvótakerfið. Sérfræðingar stofnunarinnar segja að ríkið geti aukið tekjur sínar um milljarðatugi króna árlega með hærra veiðigjaldi og þeir, vitandi eða óafvitandi, benda á alvarlega galla á kerfinu sem valda því að afrakstur atvinnugreinarinnar er í ...
Meira

Kristinn Hermannsson | 23.06.11 | 16:27 Hvað er málið með landsbyggðina?

Mynd með frétt Sif Sigmarsdóttir tekur að sér vanþakklátt hlutverk sendiboðans í bakþönkum sínum í Fréttablaðinu (22.6.) þar sem hún spyr hvað sé málið með landsbyggðina, af hverju þurfi að finna byggðavinkla á sjávarútvegi og menntamálum og hvort sé best að stjórna þessum málaflokkum án tillits til byggðasjónarmiða? Hún getur þess réttilega að málin ...
Meira


Daðey Arnborg Sigþórsdóttir | 15.06.11 | 13:20 Opið bréf til velferðaráðherra

Mynd með frétt Mig langar að vekja athygli á því að nú eru flest stéttarfélög að semja um nýja kjarasamninga og í þeim flestum er eingreiðsla upp á 50 þúsund krónur. Velfarðarráðuneytið hefur brugðist við og ákveðið að greiða bótaþegum sömu upphæð til að tryggja að allir standi við sama borð. Hinsvegar sitja þeir ...
Meira

Daníel Jakobsson | 26.05.11 | 15:58 Þjónusta við aldraða á Hlíf

Mynd með frétt Ég hef verið gagnrýndur fyrir þá ákvörðun að loka a.m.k. tímabundið verslun fyrir íbúa á Hlíf. Ekki þarf að koma á óvart að fólk vilji almennt ekki draga úr þjónustu við eldri borgara enda eigum við öll einhverja að sem við viljum að vel sé hlúð að. Þegar að svona ákvarðanir ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli