Fjölbreytt hátíðarhöld verða í Bolungarvík í tengslum við opnun Bolungarvíkurganga á laugardag. Fögnuðurinn mun standa frá því árla morguns og fram á nótt. Um morguninn verður afhjúpað minnismerki við Skarfasker í Hnífsdal. Skömmu síðar gefst viðstöddum færi á að hjóla og hlaupa í gegnum göngin frá Hnífsdal til Bolungarvíkur. Bolungarvíkurmegin verður ...
Meira
Ekki er í bígerð að auka framboð á sjónvarpsrásum í Hnífsdal og í Bolungarvík með tilkomu nýs útvarps- og símasambands í Bolungarvíkurgöngum. „ISAM væðing á þessum stöðum er ekki á áætlun Símans en við bindum vonir við samráð Póst- og fjarskiptastofnunar sem gæti skilað sér í miklu framfaraspori fyrir minni þéttbýliskjarna ...
Meira
Mikið verður um dýrðir annan laugardag þegar jarðgöngin milli Hnífsdals og Bolungarvíkur verða vígð. Sérstök hátíðardagskrá hefst kl. 10:15 um morguninn með því að minnisvarði um ástvini sem farist hafa af slysförum verður afhjúpaður við Skarfasker í Hnífsdal. Um fimmtán mínútum síðar verður hlaupið og gegnið í gegnum göngin. Gefst þá ...
Meira
Starfsmenn Rafskauts ehf., á Ísafirði unnu að því í gær að koma fyrir kapli fyrir útvarp og síma í Óshlíðargöngum. Aðferðin við uppsetningu hans þótti afar fljótvirk en vörubifreið dró kapalkeflið í gegnum göngin á meðan lyftuvagni var ekið á eftir. Á honum voru starfsmenn Rafskauts og komu kaplinum fyrir á ...
Meira
Jarðgöngin á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals munu heita Bolungarvíkurgöng að sögn G. Péturs Matthíassonar upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. Eins og fram hefur komið hefur skilti sem sett hefur verið upp við göngin með nafninu Óshlíðargöng vakið þó nokkra athygli. Verkið hét Óshlíðargöng í útboðsgögnum sem samkvæmt upplýsingum blaðamanns stafar væntanlega af því að ...
Meira
Samkvæmt skilti sem stillt hefur verið upp við jarðgöngin á milli Hnífsdals og Bolungarvíkur bera þau nafnið Óshlíðargöng. Nafnið vekur athygli þar sem mikið var rætt um nafngiftina á sínum tíma en Kristján L. Möller, þáverandi samgönguráðherra, tók það fram í nóvember 2007 að göngin myndu heita Bolungarvíkurgöng, en ekki Óshlíðargöng. ...
Meira
Bolungarvíkurgöngin, milli Bolungarvíkur og Hnífsdals, verða opnuð 25. september nk., kl. 13:30. Ögmundur Jónsson, samgönguráðherra, mun klippa borða og síðan aka fyrstu bílar í gegnum fullkláruð göngin. Samkoma verður haldin að því loknu í íþróttahúsinu í Bolungarvík þar sem samgönguráðherra, fulltrúi Vegagerðarinnar og fleiri halda ræður. „Það er í raun heilmikið ...
Meira
Tölvuþjónustan Snerpa á Ísafirði hefur undanfarnar vikur unnið að lagningu og tengingu á ljósleiðurum í Bolungarvíkurgöngum. Um er að ræða ljósleiðara sem notaðir eru til að þjónusta jarðgöngin en allir neyðarsímar, stjórn- og eftirlitsbúnaður í göngunum eru tengdir með ljósleiðara. Einnig mun Snerpa á næstu dögum leggja og tengja ljósleiðara fyrir ...
Meira
„Þetta er ákveðinn áfangi og rekur lokahöndina á vegagerðina í göngunum,“ segir Einar Hrafn Hjálmarsson, aðstoðarverkefnastjóri hjá Ósafli en lokið var við malbikun Bolungarvíkurganga í dag. „Malbikunin stóð yfir í tíu daga og gekk ljómandi vel.“ Mikill hiti myndaðist í göngunum á meðan malbikuninni stóð. „Malbikið er um 150 gráður þegar ...
Meira
Sextíu ár voru í gær liðin frá vígslu Óshlíðarvegar en hann var vígður við hátíðlega athöfn laugardaginn 26. ágúst árið 1950. Vinna við Óshlíðarveg hófst vorið 1946 og 12. október 1949 var fyrsta bílnum ekið um veginn að því er fram kemur á vefnum vikari.is. Dagar Óshlíðarvegar sem þjóðvegar verða þó ...
Meira
Malbikun vegarins gegnum Bolungarvíkurgöng gengur vel að sögn Einars Hrafns Hjálmarssonar, aðstoðarverkefnastjóra hjá Ósafli. Vonir standa til að verkinu ljúki um helgina og tekur þá við vinna við að koma fyrir vegmerkingum og skiltum auk almenns frágangs og þrifa. Einar Hrafn var ófús að gefa nákvæma dagsetningu á opnun ganganna en ...
Meira
Vegaframkvæmdum í tengslum við Bolungarvíkurgöng er að ljúka. „Vegavinnan hefur gengið vel, búið er að setja fyrra lag af klæðningu í Bolungarvík og búið að malbika stærsta hlutann af veginum í Hnífsdal. Svo verður vegurinn í jarðgöngunum malbikaður í næstu viku,“ segir Einar Hrafn Hjálmarsson aðstoðarstaðarstjóri Ósafls í Bolungarvík. Hann segir ...
Meira
Ríkiskaup hefur óskað eftir tilboðum í fimm hraðamyndavélar, sem á að setja upp í tveimur jarðgöngum, sem opnuð verða í haust, Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum. Er óskað eftir tilboði í vélarnar og allan búnað sem þeim tilheyrir auk tíu skápa fyrir myndavélar.
Meira
„Malbikunarframkvæmdirnar ganga ágætlega fyrir vestan. Við höfum verið að vinna í aðkomuvegunum að Bolungarvíkurgöngum og stefnum að því að byrja að malbika inn í göngunum næsta mánudag,“ segir Gunnar Örn Erlingsson hjá Hlaðbæ Colas ehf. „Við verðum að leggja klæðningu á þjóðveginn í Hnífsdal fram á fimmtudag og stefnum að því ...
Meira
Bolungarvíkurgöng, sem tekin verða í notkun í haust, eru byggð eftir norskum jarðgangastaðli, að sögn Gísla Eiríkssonar deildarstjóra jarðgangadeildar Vegagerðarinnar. Sama gildir um Héðinsfjarðargöng. Norski jarðgangastaðallinn tekur mið af tilskipum Evrópusambandsins sem gildir innan EES. „Göngin sem við erum að gera núna miðast við þúsund bíla umferð á sólarhring eftir nokkur ...
Meira
Hlaðbær Colas setur upp malbikunarstöð í Bolungarvík á næstu dögum. Megin verkefni stöðvarinnar verður að leggja malbik á veginn um Bolungarvíkurgöng og nýjan veg að göngunum, Hnífsdalsmegin. Þá mun Bolungarvíkurkaupstaður nýta stöðina að einhverju leyti í malbikunarframkvæmdir í bænum. Er það helst horft til hafnarsvæðisins og nýja vegtengingu milli hafnarsvæðanna sem ...
Meira
„Framkvæmdirnar ganga bara vel. Við áætlum að hleypa á umferð í kringum 15. september og það lítur út fyrir að það standist,“ segir Leó Jónsson verkfræðingur hjá Ósafli ehf., aðspurður um stöðu mála í Bolungarvíkurgöngum. Unnið er að því að ljúka við vatnsklæðingu inni í göngunum og gert er ráð fyrir ...
Meira
„Það gengur bara nokkuð vel. Það er verið að vinna á fullu í vatnsklæðningum, ásprautun og við erum langt komnir með drenlagnirnar. Síðan er verið að vinna í tengingum og í rafmagn en það er Rafskaut sér um það,“ segir Níels Reynisson, gæðastjóri hjá Ósafli í Bolungarvík, aðspurður um stöðu mála ...
Meira