Fækkun á komum skemmtiferðaskipa í ár hefur haft það í för með sér að einhver fækkun hefur orðið á ferðamönnum í Vigur í sumar. Færri bókanir voru á skipakomum í sumar miðað við í fyrra en einnig hafa nokkur skip hætt við komur sínar til Ísafjarðar vegna bilanna og annarra óviðráðanlegra ...
Meira
Mikil umferð hefur verið í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í sumar og að sögn Guðbrands Baldurssonar, staðarhaldara í Reykjanesi, hefur sumarið gengið vel þrátt fyrir miklar vegaframkvæmdir. „Þetta hefur gengið furðuvel hjá okkur. Kom mér eiginlega á óvart hvað það var mikil og góð umferð hjá okkur í sumar“, segir Guðbrandur. Hann ...
Meira
Mikil aukning gesta hefur verið hjá ferðaþjónustunni í Heydal í Ísafjarðardjúpi í sumar. „Það hefur verið mjög mikil traffík og alveg hiklaust meira en í fyrra. Við verðum vör við mikla aukningu“, segir Stella Guðmundsdóttir hjá fjölskyldufyrirtækinu Ævintýradalnum sem kom upp gisti- og veisluaðstöðu í gamalli hlöðu og fjósi árið 2003 ...
Meira
Fyrsta ferð Vesturferða og Sjóferða Kiddýjar og Hafsteins í Vigur er í dag. Ekki er um áætlunarferð að ræða en áætlun fyrirtækisins hefst í júní. Vinsælt er að fara í Vigur á þessum tíma, sérstaklega hjá starfsmannahópum og grunnskólanemum. Afar skemmtilegt er um að litast í Vigur á vorin, fuglalífið sem ...
Meira
Ferðaskrifstofan Vesturferðir á Ísafirði hefur á hverju ári komið með ýmsar nýjungar inn á markaðinn og í ár er engin breyting þar á. Meðal þess sem boðið er upp á eru kajakferðir og hestaferð í Heydal í Mjóafirði, ljósmyndaferðir í Vigur og pakkaferðir í Jökulfirði. Að auki munu Vesturferðir bjóða upp ...
Meira
Nýr bátur bætist í flota Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar um mánaðamótin apríl-maí, en verið er að byggja hann í bátasmiðjunni Trefjar í Hafnarfirði. Báturinn er 20 tonna plastbátur sem rúmar 29 farþega, af því eru 26 sæti í sal. Hann er sérstakur fyrir þær sakir að í honum er nýr skrúfubúnaður ...
Meira
Að sögn Stellu Guðmundsdóttur hjá ferðaþjónustunni Heydal í Mjóafirði leggst sumarið vel í hana. Pantanir hafa farið af stað af miklum krafti og þó sumarið sé ekki upppantað eru nokkrar helgar að fyllast. Það verður bryddað upp á ýmsum nýjungum hjá ferðaþjónustunni í sumar, en í boði verða t.d. skipulagðar kajakferðir, ...
Meira
Guðbrandur Vatnsfjörð Baldursson hefur tekið við rekstri ferðaþjónustunnar í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og hefur hann sér þar til fulltingis pólskar systur. Verkamenn sem starfa að vegagerð í Reykjarfirði gista nú hjá Guðbrandi og eru jafnframt kostgangarar. Því er nóg að gera um þessar mundir í Reykjanesi. Frá þessu var greint hjá ...
Meira
Hjá Ferðafélagi Íslands kennir ýmissa grasa þegar kemur að ferðum um Vestfirði fyrir sumarið, en eins og mörgum er kunnugt um hefur FÍ boðið upp á ferðir á Hornstrandir í áraraðir. Meðal þess sem gert verður að þessu sinni er að fara á skíðum yfir Drangajökul, en sú ferð verður í ...
Meira
„Á vestasta hluta Evrópu er Ísafjörður, miðstöð verslunar og fiskiðnaðar á Vestfjörðum, sem eru tengdir meginlandinu með mjóum granda. Bjartmáluð timburhúsin, heimili þeirra þrjú- eða fjögur þúsund íbúa sem þar búa, eru umkringd óspilltum óbyggðum. Byggðasafnið er hápunktur. Í verslunum má finna handgerðar lopapeysur og leirmuni, sem í er brennt malað ...
Meira
Níu hundrað og sextíu sjóstangaveiðimenn komu til Súðavíkur og Tálknafjarðar í sumar. „Þjónusta við sjóstangaveiðimenn gekk vonum framar í sumar en fyrstu gestirnir komu í byrjun maí og þeir síðustu fóru um miðjan september“, segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í annál sínum á sudavik.is. „Þessi nýja tegund ferðaþjónustu hefur verið ...
Meira
Reykjanes í Ísafjarðardjúpi er þekkt m.a. fyrir gnægð af heitu vatni sem þar er að finna. Nú er Reykjanes orðinn heitur reitur í nýrri merkingu því sett hefur verið upp þráðlaust netkerfi á hótelinu sem næst einnig út á tjaldstæði. Nú geta gestir í Reykjanesi því haft fartölvuna með sér og ...
Meira
Lundaveiði í eyjunni Vigur í Ísafjarðardjúpi hefur verið dræm það sem af er sumri að sögn Salvars Baldurssonar, bónda í Félagsbúinu. „Mér hefur fundist mun minna af lunda á eyjunni en undanfarin ár og veiðin gengið frekar illa.“ Þá hefur vætutíð sumarsins dregið úr heimsóknum ferðamanna en Salvar segir að nú ...
Meira
Vilborg Arnardóttir hjá Sumarbyggð hf., sem sér um útleigu á sumarhúsum í gömlu byggðinni í Súðavík segir jafnt og þétt rennsli af ferðamönnum hafa verið í sumar. „Það var svolítil deyfð í rigningartíðinni en aðsóknin hefur í heild verið mjög svipuð og í fyrra.“ Sumarbyggð var stofnuð árið 1998 og leigir ...
Meira
Eigendur þýska ferðaþjónustufyrirtækisins Vögler’s Angelreisen og tveir ritstjórar sjóstangaveiðitímarita koma til Vestfjarða í lok júlí og munu gera kynningarmyndband um umhverfið. Tilgangurinn er að kynna sjóstangaveiðiferðir sem einkahlutafélagið Fjord Fishing ehf. mun bjóða í samstarfi við Angelreisen. „Þeir eru að koma til að vega og meta aðstæður til sjóstangaveiðiferða frá Tálknafirði ...
Meira
Fjölmörg skemmtiferðaskip sigla við Íslandsstrendur á sumrin. Flest þeirra hafa viðkomu í Reykjavík og á Akureyri en Ísafjarðarhöfn hefur einnig komið sterk inn á markaðinn á undangengnum árum. Margir hafa gaman af að horfa út á sjó þegar þessi glæsilegu fley liggja við ankeri eða spássera á höfninni þegar þau liggja ...
Meira
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður, vígði í gær útsýnispalla sem komið hefur verið upp á uppgraftarsvæðinu í Vatnsfirði í Ísafjarðardjúpi svo ferðamenn geti virt fyrir sér minjarnar sem þar eru. Til stóð að Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, vígði pallana en hann gat ekki komið og hljóp því Einar Oddur í skarðið. Í tengslum ...
Meira
Íbúar í Vigur vona að útboð á rekstur ferju á Ísafjarðardjúpi verði ekki til þess að núverandi þjónusta og gæði hennar versni því ferjan sé lífæð byggðar í eynni. Sá sem nú rekur ferju á Ísafjarðardjúpi, Hafsteinn Ingólfsson hjá Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar ehf., segist hafa ákveðnar efasemdir um að þeir ...
Meira
Franska skemmtiferðaskipið Le Deamant kom að bryggju á Ísafirði um níuleytið í morgun og liggur nú við Sundahöfn. Skipið hefur viðdvöl í bænum í dag og heldur áfram för sinni um kvöldmatarleytið. Með í för eru 220 farþegar sem verja deginum meðal annars í göngu um bæinn og skemmtiferð í eyjuna ...
Meira
Fjölmenni var við opnun sýningarinnar „Kaldalón og Kaldalóns“ sem Snjáfjallasetur gekkst fyrir í Dalbæ á Snæfjallaströnd á laugardag. Við sama tækifæri var tekin í notkun ný og glæsileg sýningaraðstaða setursins. Í tilefni opnunarinnar stóð Snjáfjallasetur fyrir dagskrá tileinkaðri Sigvalda Kaldalóns í Dalbæ. Kammerkórinn á Ísafirði söng nokkur lög Sigvalda og fjórir ...
Meira
Flugvöllurinn í Bæjum á Snæfjallaströnd var til skamms tíma mikilvæg samgöngubót, bæði fyrir íbúa Snæfjallahrepps og aðra íbúa við Djúp. Völlurinn var þó tekinn af skrám Flugmálastjórnar fyrir nokkrum árum og síðastliðið sumar komu starfsmenn hennar og rifu niður flugvallarskúrinn og með honum flugvallarpokann. „Páli bónda í Bæjum þótti þetta ótækt ...
Meira
Hin bandaríska Robbie Genton kom til Vestfjarða fyrir rúmum þrjátíu árum og finnst mikið til um breytingarnar sem hafa orðið síðan þá. „Það hafa orðið ótrúlegar framfarir. Þá fór ég með póstbátnum í ferð um Ísafjarðardjúp og nú er ég komin ásamt manni mínum til að upplifa ferðin á ný“, segir ...
Meira
Á laugardag verður opnuð sögusýningu í Dalbæ á Snæfjallaströnd um gönguleiðir og sagnir sem tengjast Kaldalóni og tónskáldið Sigvalda Kaldalóns. Í tilefni opnunarinnar mun Kammerkórinn á Ísafirði flytja nokkur af lögum Sigvalda. Þá munu Gunnlaugur A. Jónsson og Sigvaldi Snær Kaldalóns flytja ávörp og flutt verður lag þess síðarnefnda, „Sveitin mín”, ...
Meira
Níu tveggja manna herbergi með baði verða tilbúin til notkunar hjá ferðaþjónustunni í Heydal í Mjóafirði um komandi helgi. „Það er stöðug vinna framundan við uppbygginguna, segir Stella Guðmundsdóttir, ferðaþjónn í Heydal, en næsta verkefni er að reisa eldhús og veislusal. Fjölskyldufyrirtækið Ævintýradalurinn vinnur að uppbyggingu gisti- og veisluaðstöðunnar í gamalli ...
Meira
Öðrum áfanganum í gerð tjaldstæðis í Súðavík er að ljúka. Tjaldstæðið er fyrir ofan félagsheimilið og munu gestir fá að dvelja það án endurgjalds í sumar þar sem umgjörð svæðisins er ekki full frágengin. Framkvæmdum við tjaldsvæðið var skipt niður í þrjá áfanga og var þeim fyrsta lokið í fyrra. Búið ...
Meira
Valagil í Álftafirði er „hrikalega fallegt eins og starfsmenn Bókhlöðunnar-Pennans á Ísafirði komust að raun um þegar þeir gengu að gilinu fyrir skemmstu. Hrafn Snorrason, ljósmyndari, var með í för og tók meðfylgjandi myndir sem sýna vel hrikalega fegurðina. Hrafn segir hafa tekið um einn klukkutíma, á rólegri göngu, að fara ...
Meira
Vesturferðir búast við mikilli ásókn í ferðir til eyjunnar Vigur í Ísafjarðardjúpi m.a. vegna metfjölda skemmtiferðaskipa sem von er á í sumar. Áætlunarferðir hefjast í dag en ekki er farið fyrr vegna æðafuglsins sem liggur á dúnþekjum á vorin. Þó hafa nokkrir hópar fermingarárganga og ráðstefnugesta fengið undanþágu og heimsótt eyjuna. ...
Meira
Sumarið lofar góðu fyrir útgerðir farþegabáta við Ísafjarðardjúp og hefur mikið verið pantað það sem af er, a.m.k. hjá tveimur fyrirtækjum sem bb.is hafði samband við í dag. Hornstrandir og aðrar eyðibyggðir norðan Djúps eru vinsælar hjá ferðafólki auk þess sem Vigur í Ísafjarðardjúpi hefur verið fjölsóttur ferðamannastaður undanfarin ár og ...
Meira
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýjar ehf. á Ísafirði hafa skrifað undir samning um smíði á 38 farþega bát hjá bátasmiðjunni Samtak í Hafnarfirði. Báturinn verður afhentur í maí. Fyrir á fyrirtækið tvo nýlega báta. Annar er 48 farþega og hinn 22 farþega. Þegar sá nýjasti verður kominn í flotann getur fyrirtækið því ...
MeiraJakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi og Íslandsmethafi í bringusundi, fer til Lúxemborgar á sunnudaginn og hyggst dvelja þar við æfingar fram yfir Ólympíuleikana sem fram fara í Aþenu seinni hluta ágústmánaðar nk. Í Lúxemborg æfir Jakob Jóhann undir stjórn síns gamla læriföður, Þjóðverjans Bodo Wermelsckirchen, sem þjálfaði Jakob hjá Sundfélaginu ...
MeiraÍtrekað hefur verið brotist inn í skip hjá Ólafi Arnberg Þórðarsyni, skipstjóra á Eldhamri GK, og stolið deyfilyfjum úr lyfjakistu skipa hans, en slíkt hafði alvarlegar afleiðingar fyrir skemmstu þegar engin deyfilyf voru tiltæk þegar skipverji missti fót í vinnuslysi um borð.
MeiraRéttarrannsókn á dauða Díönu prinsessu af Wales og Dodi Al Fayed í París 31. ágúst 1997 hefst í Bretlandi í dag en það er í fyrsta sinn sem bresk yfirvöld rannsaka formlega kringumstæður láts þeirra. Frönsk réttarrannsókn komst að þeirri niðurstöðu að bílstjóri þeirra Díönu og Dodi hafi verið ölvaður og ...
Meira
Hreppsnefnd Súðavíkur hefur sett á laggirnar verkefnahóp sem á að móta, kynna og hrinda í framkvæmd viðburðaþjónustu í Súðavík eins og segir í samþykkt hreppsnefndar. Hópurinn er settur á laggirnar vegna sívaxandi ferðamannastraums til Álftafjarðar og er ætlað að vera tengiliður sveitarfélagsins og þeirra ferðamanna sem til svæðisins leita. Sérstaklega er ...
Meira
Hátíðin
Listasumar í Súðavík hefst miðvikudaginn 6. ágúst. Hátíðin verður sett með tónlistarflutningi og kvöldkaffi þar sem boðið verður upp á stóra afmælistertu í tilefni fimm ára afmælis hátíðarinnar. Eins og venja er verður sýnd kvikmynd í félagsheimilinu á fimmtudagskvöld og að þessu sinni varð fjölskyldumyndin Didda og dauði kötturinn fyrir ...
Meira
Ferðaþjónustan í Heydal í Ísafjarðardjúpi opnaði gistiaðstöðu sína með tveimur herbergjum fyrir um hálfum mánuði en tveimur herbergjum til viðbótar verður bætt við um þessa helgi. Atli Pálmason hjá ferðaþjónustunni í Heydal segir ágætis aðsókn hafa verið það sem af er sumars og ágætlega líti út með framhaldið. Töluverð uppbyggingin á ...
Meira
Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar í samvinnu við ferðaþjónustuna í Dalbæ á Snæfjallaströnd bjóða nú upp á dagsferðir í Kaldalón í Ísafjarðardjúpi. Fyrsta ferðin var farin síðdegis í gær en ætlunin er að sigla hvern fimmtudag kl. 17 frá Ísafirði og er komið aftur til baka upp úr kl. 22. Ingólfur Kjartansson ...
Meira
Framkvæmdir við nýtt tjaldstæði Súðvíkinga hefjast í næstu viku og munu standa fram á haust. Hið nýja tjaldstæði verður staðsett ofan við félagsheimilið í Súðavík og mun þar í sumar rísa fullkomið þjónustuhús. Það mun fullnægja öllum nútímakröfum, til dæmis hvað varðar aðgengi fyrir fatlaða, segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. ...
Meira
Sögusafn verður opnað í Súðavík í þessari viku eða þeirri næstu. Safnið verður til húsa í gamla pósthúsinu, en Verkalýðsfélag Vestfirðinga á og lánar húsið. Á safninu verður meðal annars að finna myndir af nær öllum bátum og skipum sem tengst hafa Álftafirði, auk mynda af nær öllum húsum sem byggð ...
Meira
Tæplega 100 manns lögðu leið sína í samkomuhúsið í Ögri í Ísafjarðardjúpi í gær en þar var opnuð sýning á ljósmyndum frá gamalli tíð í sveitinni, sú elsta frá árinu 1875. Guðfinna M. Hreiðarsdóttir sagnfræðingur hafði veg og vanda að söfnun myndanna sem eru 100 talsins og koma frá tæplega 40 ...
Meira
Bandaríska skemmtiferðaskipið Clipper Adventurer kom víða við á norðanverðum Vestfjörðum í gær. Snemma morguns fóru farþegar þess í gönguferð um Hornvík þar sem heimskautarefur gladdi augu ferðamannanna. Næst lá leiðin til Ísafjarðar þar sem leikhópurinn Morrinn tók á móti fólkinu. Morraliðar klæddust þjóðlegum klæðum og dreifðu bæklingum til ferðamannanna á meðan ...
Meira
Ferðaþjónustuaðilar á norðanverðum Vestfjörðum eru að setja sig í startholurnar vegna móttöku skemmtiferðaskipa í Ísafjarðarhöfn í sumar. Hafnarstjóri og ferðamálafulltrúi Ísafjarðarbæjar hafa boðað til fundar um móttöku skipa á Hótel Ísafirði í hádeginu á morgun. Rúnar Óli Karlsson ferðamálafulltrúi Ísafjarðarbæjar segir þá félaga vilja heyra hljóðið í þeim sem hafa verið ...
Meira
Fjölskyldufyrirtækið Ævintýradalurinn vinnur nú að uppbyggingu gisti- og veisluaðstöðu í gamalli hlöðu og fjósi í Heydal í Mjóafirði. Fyrirtækið hóf starfsemi síðastliðið sumar og hefur boðið upp á bændagistingu, snjósleða-, kajak- og hestaferðir. Atli Pálmason hjá Ævintýradalnum segir verkefnið núna að byggja gistiaðstöðu með níu tveggja manna herbergjum með baði en ...
Meira
Dorothee [Dóra] Lubecki, ferðamálafulltrúi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða og Rúnar Óli Karlsson, atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi Ísafjarðarbæjar, sóttu um síðustu mánaðarmót alþjóðlega ferðakaupstefnu í Hannover í Þýskalandi sem hefur þá sérstöðu að einblína á sjálfbæra eða græna ferðamennsku. Mér finnst þessi græni vinkill vera forskot fyrir Vestfirði umfram aðra staði á Íslandi og í ...
Meira
Hinn 28. júlí hélt eg á stað frá Ísafirði inn með Djúpi ; fórum við fyrsta daginn inn fyrir Skutilsfjörð, kring um Álftafjörð og að Eyri í Seyðisfirði. Melhjallar eru fyrir framan báða dalbotnana, sem ganga inn af Skutilsfirði, og hafa árnar brotizt í gegn um þá; þar eru ísrákir ...
Meira
Veturinn lítur ágætlega út fyrir rekstraraðila í Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. Að sögn Bjarna Ingvarssonar, eins eigenda Ferðaþjónustunnar Reykjanesi, hafa hópar þegar bókað gistingu í vetur, en húsnæði þar þykja henta einkar vel fyrir ráðstefnu- og árshátíðahald. Við tökum öllum gestum opnum örmum í vetur, segir Bjarni. Annars verður tíminn líka nýttur ...
Meira
Aðilum í ferðaþjónustu á norðanverðum Vestfjörðum virðist bera saman um að sumarið hafi verið misjafnara í ár en oft áður, þ.e.a.s. stærri toppur yfir háannatímann. Ég tók eftir því að það var aukning á ferðum í Vigur í júlí, en að sama skapi fækkun í ágúst, segir Hafsteinn Ingólfsson hjá Sjóferðum ...
Meira
Djúpmannabúð í Mjóafirði hefur verið lokað í ár og ekki er víst að verslunin verði opnuð aftur á næsta sumri. Jóhanna Logadóttir, annar rekstraraðili Djúpmannabúðar, vildi þó ekki staðfesta að ákvörðun hefði verið tekin um að loka Djúpmannabúð fyrir fullt og allt. Ég held að það séu meiri líkur á að ...
Meira
Ekki er hægt að segja að straumur ferðamanna liggi á einhvern ákveðinn stað á Vestfjörðum um verslunarmannahelgi að þessu sinni frekar en undanfarin ár. Hingað hafa alltaf komið ferðamenn um verslunarmannahelgina sem eru í leit að friði og ró, en við höfum aldrei orðið vör við neina verslunarmannahelgarbombu, segir Sigríður Ó. ...
Meira
Hið árlega Ögurball verður haldið laugardaginn 27. júlí. Böll þessi hafa ætíð þótt nokkuð sérstök, ekki síst fyrir þær sakir að ballgestir fá rabbabaragraut með rjóma á miðjum dansleik. Að sögn Leifs Halldórssonar, annars tveggja skipuleggjenda dansleiksins, er það húsfreyjan í Ögri, María Guðröðardóttir, sem eldar grautinn. Það munu allir fá ...
Meira
Helgina 19.-21. júlí eru væntanlegir til Ísafjarðar tveir reyndir húðkeipssmiðir frá vinabæ Ísafjarðarbæjar í Grænlandi, Nanortalik. Þeir munu standa fyrir námskeiði í smíði húðkeipa á grænlenska vísu í tengslum við hina árlegu hátíð Siglingadagar á Ísafirði. Námskeiðshaldið fer fram í Sjóminjasafninu í Neðstakaupstað. Mikil hefð er fyrir notkun húðkeipa á Grænlandi ...
Meira
Rekstraraðilum í Djúpmannabúð þykir ferðamannastraumur um Ísafjarðardjúp áberandi minni en á sama tíma í fyrra. Jón Björnsson, hæstráðandi í Djúpmannabúð, segist hafa rætt við fleiri aðila í ferðaþjónustu á svæðinu og segir þá vera sammála sér hvað þetta varðar. Innlendum ferðamönnum virðist hafa fækkað, en eins og alkunna er, byrja Íslendingar ...
MeiraÁ ferð um Vestfirði 2002 | 27.06.02 | 16:08Kvöldverður í Vigur

Vigurferðir Ferðaskrifstofunnar Vesturferða á Ísafirði eru rómaðar viða um lönd. Í ár bjóða Vesturferðir ferðafólki nýjan möguleika á kynnum af perlu Ísafjarðardjúps. Í stað þess að belgja sig út af sætabrauði síðdegis (sem er ágætt út af fyrir sig) er núna hægt að smella sér í kvöldverðarboð til fólksins í Vigur ...
MeiraSumarið 2000 voru Siglingadagar haldnir í fyrsta sinn á og við Ísafjarðardjúp og verða þeir nú haldnir í þriðja sinn. Tilgangur þessarar hátíðar er að stefna saman áhugafólki um siglingar af hvaða tagi sem er, jafnt hér á landi sem og erlendis. Á þessu móti sem stendur tvær helgar í júlí ...
Meira
Síðustu árin hafa Ögurböllin gamalkunnu verið endurvakin en þau voru og eru líka kölluð bátaböll. Á árum áður voru dansleikirnir á hinu fornfræga höfuðbóli, Ögri við Ísafjarðardjúp, einhver mesti fagnaður ársins við Djúpið innanvert. Oft var umsjón þeirra í höndum Sigurjóns Samúelssonar á Hrafnabjörgum, hins landsþekkta hljómplötusafnara.
Meira
Hátt í þriðja hundrað manns mættu á rímnahátíð sem jafnframt markaði opnun byggðasögusýningar Snæfjalla- og Höfðastranda í félagsheimilinu Dalbæ á Snæfjallaströnd á laugardag. Þótti hátíðin heppnast með afbrigðum vel og munu ánægðir gestir strax farnir að vekja máls á því að gera hátíðina að árlegum viðburði. Hófst hátíðin á hugvekju Séra ...
Meira
Ferðaþjónustan Reykjanesi ehf. hefur verið seld sömu aðilum og keyptu fasteignirnar á nesinu. Þeir eru Bjarni Rafn Ingvarsson, Guðbjartur Karl Ingibergsson, bræðurnir Jóhann og Jón Heiðar Guðjónssynir og eignarhaldsfélagið Kem í Reykjavík. Kaupunum fylgja nafn fyrirtækisins, kennitala, heimasíða og allur eignarlager. Kaupverð fæst ekki gefið upp.
Meira
Séra Baldur Vilhelmsson, fyrrverandi sóknarprestur í Vatnsfirði, flytur hugvekju á rímnahátíð og opnun byggðasögusýningar Snæfjalla- og Höfðastranda í Dalbæ á morgun. Þá syngur kór kvæðamanna, Gísli Hjartarson segir frá gönguleiðum og Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segir frá Jóni lærða. Þessir viðburðir eru einungis brot af þeirri dagskrá sem menn ...
Meira
Eldsneyti verður ekki afgreitt í Djúpmannabúð í Mjóafirði í sumar. Að sögn Jóhönnu Agnesar Logadóttur, eins staðarhaldara, var sameiginleg ákvörðun eigenda Djúpmannabúðar og Olíufélagsins hf. að hætta allri bensín- og olíusölu á staðnum. Við komumst að þeirri niðurstöðu að ekki væri grundvöllur fyrir bensínsölu hér þar sem Olíufélagið telur ekki hagkvæmt ...
Meira
Útleiga á sumarhúsum í Súðavík hefur verið að sækja í sig veðrið allt frá því að byrjað var að bjóða upp á þjónustuna fyrir fáum árum og er nú svo komið að öll gistirými bæjarins eru uppbókuð yfir hásumarið. Sumarbyggð í Súðavík er stærst þeirra fyrirtækja sem leigja út sumarhús í ...
Meira
Ferðalangar sem komu með skemmtiferðaskipinu Black prince í morgun eiga vart orð til að lýsa Ísafjarðardjúpi og eyjunni Vigur og hafa alls um 150 manns látið ferja sig í eyjuna. Svo segir Hafsteinn Ingólfsson hjá Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar, en þegar blaðið ræddi við hann í farsíma fyrir stuttu var hann ...
Meira
Enn er verið að athuga tilboð sem ríkinu barst í húseignir þess í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Hjá fjármálaráðuneytinu fengust þær upplýsingar að tilboðið væri álíka hátt og önnur tilboð sem borist hafa í eignina frá því að hún var auglýst til sölu. Þau tilboð hafa verið á þriðja tug milljóna króna. ...
Meira
Djúpmannabúð í Mjóafirði mun að öllum líkindum þjóna sem annar tveggja kjörstaða Súðavíkurhrepps í komandi sveitastjórnarkosningum auk Grunnskóla Súðavíkur, en hingað til hefur Reykjanes gegnt því hlutverki. Endanleg ákvörðun um málið mun að öllum líkindum liggja fyrir að loknum fundi sveitastjórnar Súðavíkurhrepps í dag, en Jón Björnsson, eigandi Djúpmannabúðar segir að ...
Meira
Dreifbýlismóri var kveðinn niður með kröftugri galdraþulu og mögnuðum særingum um nónbil á þriðjudag. Var þar að verki galdramaður af Ströndum, Sigurður Atlason, sem kann ævaforn ráð til að ráða niðurlögum móra og annarra kvikinda. Farðu! Farðu! Farðu nú norður og niður! Náist þér hvergi friður, gólaði galdramaðurinn og hefur móri ...
Meira
Sögumiðlunin og Ferðaþjónustan Dalbæ vinna nú að skipulagningu rímnahátíðar á Snæfjallaströnd sem jafnframt verður opnunarhátíð byggðasögusýningar er tengist rímnakveðskap. Menntamálaráðuneytið hefur lagt 500 þúsund krónur í sögusýninguna sem opnuð verður laugardaginn 22. júní kl. 15:00. Megin sýningarefnið er byggðasaga Snæfjalla- og Höfðastranda og líf og starf Jóns lærða sem kvað Snjáfjallavísur ...
Meira
Ferðamálasamtök Vestfjarða hljóta umhverfisverðlaun Umhverfissjóðs verslunarinnar og Ungmennafélags Íslands fyrir árið 2001. Verðlaunin eru veitt fyrir markvissa miðlun á fróðleik um umhverfisvæna ferðaþjónustu auk áherslna á útivist og umhverfisvernd við markaðssetningu Vestfjarða. Verðlaunin sem eru í formi lítils listaverks, verða afhent við smáathöfn við tjaldsvæðið í Tungudal nk. mánudag. Listaverkinu hefur ...
Meira
Í sumar sigldi ég einn á kajak frá Reykjanesi í Ögur og þaðan út í Æðey en þar dvöldum við mamma í 12 eða 13 sumur þegar ég var krakki. Það var gaman að koma þangað aftur. Síðan sigldi ég beina leið til Ísafjarðar, sem var auðvitað brjálæði, en svona er ...
Meira
Á þessu ári mun Ferðamálaráð Íslands úthluta styrkjum til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum á Suðurlandi, Reykjanesi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Úthlutað verður til framkvæmda á vegum einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og sveitarfélaga, sem stuðla að verndun náttúrunnar jafnframt bættum aðbúnaði ferðamanna. Kostnaðaráætlun þarf að fylgja með umsókn, svo og önnur skilgreining á ...
Meira
Engin stóriðja er á Vestfjörðum, engin álver og engar járnblendiverksmiðjur sem spúa eitri út í náttúruna. Eina iðnaðarlyktin sem hægt er að finna í vestfirskum sjávarplássum er lyktin af fiski og sjó. En svo merkilegt sem það kann að virðast, þá var fyrsta stóriðja Íslendinga einmitt á Vestfjörðum. Það var saltvinnslan ...
Meira
Nú um áramótin hætti Ferðaþjónustan Reykjanesi ehf. rekstri í húsnæði Héraðsskólans í Reykjanesi við Djúp. Að sögn Margrétar Karlsdóttur í Reykjanesi er ástæða lokunarinnar fyrst og fremst sú sparnaðarráðstöfun ríkisins, að segja upp eftirlitsmanni staðarins án þess nokkur væri fenginn í staðinn til að líta eftir hinum flókna dælubúnaði og frystikerfi ...
Meira
Flestir kannast við tvær af eyjunum á Ísafjarðardjúpi, Æðey og Vigur, en sú þriðja, Borgarey, er innst, minnst og minna þekkt en hinar. Þar er heldur engin búseta eins og í hinum tveimur, þó að svo hafi verið á fyrri tímum. Nú er einungis fuglabyggð í Borgarey og blómlegt æðarvarp eins ...
Meira
Ferðin hefst í Álftafirði, nánar tiltekið í Firði, en svo heitir dalurinn inn af firðinum vestanverðum. Fjörður er mikilfenglegur dalur, umgirtur háum fjöllum og í hlíðum fjallanna eru ákaflega mörg og margbreytileg gil, er mynduð eru af rofafli vatns, vinda og frosts. Allstórt sjávarlón er í Firði og gætir sjávarfalla á ...
Meira
Hátíð verður haldin í Súðavík dagana 10.-13. ágúst undir heitinu Listasumar í Súðavík. Auk tónleika og margra annarra viðburða verður haldið leiklistarnámskeið og flutt verður leikrit um séra Odd V. Gíslason, helsta upphafsmann slysavarna á Íslandi.
Meira