Pólitík

Kristinn H. Gunnarsson | 03.11.11 | 09:41 15 milljarða króna gjöf ríkisins

Mynd með frétt Fréttablaðið birti á forsíðu sinni frétt um mikil uppgrip í uppsjávarveiðum. Veiðar á makríl, síld og loðnu munu væntanlega skila um 75 milljörðum kr í þjóðarbúið. Það eru góðar fréttir fyrir marga, en sérstaklega fyrir útgerðina sem græðir á tá og fingri um þessar mundir.
Meira

Kristinn H. Gunnarsson | 25.10.11 | 14:30Plan B: Amma borgar

Mynd með fréttRitari Framsóknarflokksins heldur því fram í aðsendri grein í Fréttablaðinu að verðtryggingu hafi verið komið á til þess að steypa fólki í skuldir með hjálp verðbólgunnar. Þarna er staðreyndum snúið á haus. Verðtryggingu var komið á til þess að koma í veg fyrir að skuldarar, meðal annars þeir sem reistu sér ...
Meira


Ásmundur Einar Daðason | 20.10.11 | 15:36 Stjórn heilbrigðisstofnana heim í hérað

Mynd með frétt Á undanförnum árum höfum við ítrekað séð stjórnvöld ráðast harkalega gegn heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þessi aðför heldur áfram nái fjárlagafrumvarp næsta árs fram að ganga en þar er boðaður áframhaldandi niðurskurður heilbrigðisstofnana víða um land. Íbúar hafa eðlilega miklar áhyggjur enda er heilbrigðisþjónusta, eins og allir vita, undirstaða hvers byggðalags.
Meira

Níels A. Ársælsson | 19.10.11 | 13:48 Það skiptir ekki neinu máli

Mynd með frétt Það er ekki hægt að tala við fólk, hvorki stjórnarliða né stjórnarandstöðu. Það er ekkert mark á neinum takandi í stjórnsýslunni, hvorki minni spámönnum né embætismönnum ráðuneyta. Það skipti ekki máli hversu mikið af gögnum eru lögð fram er benda sannarlega á hroðalega meðferð handhafa aflaheimilda á meðbræðrum sínum síðastliðin ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 12.10.11 | 10:19 Sjálfsblekkingin um 2007

Mynd með frétt Sú sjálfsblekking er áberandi í þjóðfélaginu að hægt sé að strika út efnahagsleg áhrif hrunsins og hverfa aftur til lífskjara árins 2007. Til marks um það eru kröfur um lækkun skulda, hækkun launa og bætur fyrir lækkun íbúðaverðs. Staðreyndin er sú að lífskjörin á hátindi góðærisins fyrir hrun voru blekkingin ein, ...
Meira

Ólína Þorvarðar - Lilja Rafney | 06.10.11 | 09:54 Betra fiskveiðistjórnarkerfi til framtíðar

Mynd með frétt Sjávarútvegs og landbúnaðarnefnd Alþingis hefur verið með í umsagnarferli frumvarp til laga um stjórn fiskveiða sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra mælti fyrir á Alþingi s.l. vor. Af umsögnum að dæma eru afar skiptar skoðanir um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar, fjölmargir umsagnaraðilar lýsa sig sammála þeim markmiðum sem sett eru fram í frumvarpinu en jafnframt ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 03.10.11 | 09:29 Skuldafangelsi Íslandsbanka

Mynd með frétt Viðskiptabankarnir beita öllu afli sínu og verja óbreytt kvótakerfi. Þeir hæla kerfinu á hvert reipi og Íslandsbanki lofar það í hástert. Bankastjórinn segir áróðurstríð vera í gangi og nú verði allir að velunnarar þeirra sem eiga ótímabundinn einkarétt á hagnaðinum að verjast áformum stjórnvalda. Það er um mikla peninga að tefla, ...
Meira

Elías Guðmundsson | 28.09.11 | 14:30 Sundrað eða sameinað samfélag

Mynd með frétt Mig langar í tilefni þess að bæjarráð hefur lagt til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að taka upp skjaldamerki Ísafjarðarkaupstaðar sem sameiginlegt byggðamerki fyrir sameinað sveitarfélag að útskýra af hverju ég og margir aðrir íbúar minni byggðakjarna Ísafjarðarbæjar tölum um vanvirðingu stjórnsýslunnar gagnvart okkur og eigum erfitt með að bera stolt merki Ísafjarðarkaupstaðar. ...
Meira


Gunnar Hólmsteinn Ársælsson | 19.09.11 | 15:35 Er ekki til mikils að vinna?

Mynd með frétt Í íslenskum fjölmiðlum, bæði í formi innsendra greina, sem og skoðunum ritstjóra ákveðinna prentmiðla, má lesa að allt sé í ljósum logum í Evrópu. Að ESB og Evran séu að hruni komin. Þessvegna sé það hin mesta vitleysa að Ísland sé nú að sækja um aðild. Og alveg sérstaklega vegna þess ...
Meira

Kristinn H. Gunnarsson | 15.09.11 | 09:54 Dýrafjarðargöngin næst og strax

Mynd með frétt Í tilefni af því að í dag eru rétt 15 ár síðan Vestfjarðagöngin voru tekin í notkun var ágæt umfjöllun í Kastljósi Ríkissjónvarpsins um áhrif og gagnsemi ganganna. Þetta var gott framtal hjá Sjónvarpinu sem rétt er að þakka fyrir. Það kom skýrt fram hjá öllum sem við var rætt að ...
Meira


Einar Kristinn Guðfinnsson | 13.09.11 | 10:12 Vegagerð á tveimur hæðum?

Mynd með frétt Niðurstaða Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra varðandi Vestfjarðaveg 60 veldur miklum vonbrigðum. Það má sjá af viðbrögðum heimamanna, sem við höfum séð síðustu dægrin. Í raun felur tillaga ráðherrans í sér að farið skuli með veginn í Gufudalssveitinni um hálsana, Ódrjúgsháls og Hjallaháls. Það er sú leið sem heimamönnum hugnast síst. Ljóst ...
Meira

Jón Páll Jakobsson | 26.08.11 | 09:28 Að verja einokun!

Mynd með frétt Nú er Landsbankinn búinn að fella sinn dóm ef við hróflum við kvótakerfinu mun bankinn tapa bara sí svona 22 miljörðum og í kjölfarið munu lífskjör versna svona almennt. Ég er orðinn frekar pirraður á allri þessari umræðu. Í mínum huga snýst þetta um réttlæti ekki hvort Landsbankinn mun tapa eða ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 15.08.11 | 14:25 Skynsemin ræður á Ísafirði

Mynd með frétt Misjöfn eru úrræði lögreglunnar þegar mikill mannfjöldi er saman kominn af einhverju tilefni og bílafjöldinn er mun meiri en stæði eru fyrir. Í Reykjavík beitir lögreglan fjársektum sem renna til borgarinnar. Eina helgina í júní voru liðlega 200 manns sektaðir við Laugardagshöllina þar sem fram fór útskrift kandídata við Háskóla Íslands. ...
Meira

Sigurjón Þórðarson | 15.08.11 | 11:18 Að berjast gegn eigin björgun

Mynd með frétt Fréttir á BB-vefnum herma, því miður, að afkoma Vesturbyggðar hafi verið langt undir væntingum á fyrri hluta þessa árs. Ef allt væri með felldu í sjávarútvegsstefnu þjóðarinnar hefði gengisfall íslensku krónunnar þýtt auknar tekjur sjómanna og hækkandi útsvarstekjur sveitarfélagsins þar sem bærinn er í næstu nálægð við ein auðugustu fiskmið heims.
Meira


Einar Kristinn Guðfinnsson | 10.08.11 | 15:14 Ósanngjörn landbúnaðarumræða

Mynd með frétt Í gúrkutíð sumarsins hófst duggunarlítil umræða um landbúnaðarmál. Ekkert er undan því að kvarta að menn hefji máls á því sem þeir telja brýnt, nema að því leitinu að í umræðunni var öllum hlutum snúið á haus. Þannig var það sem síst skyldi, gert tortryggilegt og ósanngjörnum vopnum því beitt ...
Meira

Þorvaldur Gylfason | 13.07.11 | 13:36 Auðlindaákvæðið

Mynd með frétt Auðlindaákvæðið í áfangaskjali Stjórnlagaráðs hljóðar nú svo. Það gæti enn átt eftir að breytast, en varla mikið úr þessu. Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og því má aldrei ...
Meira


Björn Valur Gíslason | 06.07.11 | 13:31 Kristinn H. og ræfillinn ég

Mynd með frétt Kristinn H Gunnarsson sendir mér heldur betur tóninn í grein sinni hér á síðunni á dögunum. Hann heldur því fram að ég standi gegn öllum breytingum á stjórn fiskveiða. Hann segir mig vera í liði með froðufellandi útgerðarmönnum og afturhaldsflokkum sem engar breytingar vilji sjá á kvótakerfinu. Hann telur mig vera ...
Meira

Einar Kristinn Guðfinnsson | 29.06.11 | 13:22 Að skjóta sig í fótinn

Mynd með frétt Það er merkilegt hve sjávarútvegsstefna ríkisstjórnarinnar hefur gjörsamlega snúist upp í andhverfu sína. Hún var sett fram með tiltekin markmið að leiðarljósi. Nú er komið í ljós að stefnan vinnur í veigamestu atriðunum gegn þessum markmiðum! Þetta er ótrúlegt klúður og sýnir í raun fullkomið gjaldþrot þeirrar hugmyndafræði í ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 27.06.11 | 13:37 Lágkúruleg fréttamennska á RÚV og Stöð2

Mynd með frétt Fjölmiðlar eru áhrifamiklir eðli málsins samkvæmt og þeir eru í lykilstöðu í allri þjóðfélagsumræðu. Þeir ráða því hvaða mál eru tekin upp og hafa nánast sjálfdæmi um efnistök, hvaða staðreyndum er komið á framfæri, hvaða sjónarmiðum, við hverja er rætt, hvenær og hvernig. Staða þeirra og áhrifamáttur einstakra fréttamanna er því ...
Meira

Kristinn H. Gunnarsson | 23.06.11 | 11:33 Ómakleg Orrahríð

Mynd með frétt Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í síðustu viku vegur Magnús Orri Schram, alþingismaður ómaklega að Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Segir hann nánast berum orðum að Geir beri sjálfur ábyrgð á því að þurfa verja sig fyrir úreltum Landsdómi. Rökstyður Magnús Orri þau ummæli sín með því að vísa til þess að ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 20.06.11 | 14:22 Það þarf víst að breyta kvótakerfinu!

Mynd með frétt Undanfarna tvo daga hefur dunið á landsmönnum síbylja úr öllum fjölmiðlum þar sem hamast er gegn áfromuðum breytingum á kvótakerfinu. Tilefnið er skýrsla svonefndar sérfræðinganefndar um hagræn áhrif af tillögum ríkisstjórnarinnar. Leiddur er fram hver kvótastaurinn á fætur öðrum til þess að vitna um „atlöguna að sjávarútveginum“ sem felst ...
Meira

Kristinn H. Gunnarsson | 15.06.11 | 13:17 Tálsýnin- lífskjör á lánum

Mynd með frétt Verðtryggingu lánsfjár er mjög kennt um skuldavanda fyrirtækja og heimila. Því er haldið fram að vandinn væri minni eða hverfandi ef lánin væru óverðtryggð eða í erlendum gjaldmiðli. Hvort tveggja eru miklar bábiljur. Vandinn er skuldin sjálf en ekki form hennar. Skuldasúpan væri svipuð þótt hún væri ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli