Helga Dóra Kristjánsdóttir | 01.02.2010 | 13:04Dagur kvenfélagskonunnar
Kvenfélagasamband Íslands fagnar 80 ára afmæli sínu í ár, en það var stofnað 1. febrúar 1930. Ákveðið hefur verið af KÍ, að 1. febrúar verði dagur kvenfélagskonunnar, til að minnast starfa þeirra í þágu samfélagsins. Kvenfélagskonur hafa gegnum tíðina starfað af elju og dugnaði og auðgað menningu og mannlíf með ýmsum samkomum og uppákomum.Vestfirskar konur
Samband verstfiskra kvenna er einnig 80 ára í ár, en innan sambandsins starfa 14 kvenfélög, frá Barðaströnd inn í Djúp. Fyrsta kvenfélagið á Vestfjörðum var reyndar stofnað árið árinu 1906 í Haukadal í Dýrafirði, saga þeirra spannar því á aðra öld. Sum hafa liðið undir lok, en enn fleiri hafa verið stofnuð. Kvenfélögin eru sjálfstæðar einingar og taka sér fyrir hendur ólík verkerfni, en velja sér starfsvettvang þar sem þær telja farsælast á hverjum stað. Ófáir hafa notið stuðnings þeirra með beinum fjárframlögum Þrátt fyrir að hafa mörg hver starfað í marga áratugi, hafa félögin aðlagað sig að nýjum tímum, með breyttum áherslum. Það gera þau með því að að hlúa að sínum félagskonum, en jafnframt taka þátt margvíslegum þáttum samfélagsins. Hver kannast ekki við að hafa tekið þátt í þorrablóti, jólaskemmtun, álfadansi, spilakvöldi, kaffiboðum, ferðalagi, námskeiði eða hvaðeina, sem kvenfélagskonur standa fyrir. Það má með sanni segja, að félögin séu horsteinn menningar í hverju byggðalagi.
Húfuverkefni
Hver nýburi sem fæðist á þessu ári, fær að gjöf húfu frá kvenfélagskonu. Þetta er verkefni er unnið á landsvísu í samvinnu við ljósmæður. Um 5.000 börn fæðast árlega, þannig að nú er prjónað af kappi til að fylla kvótann. Við tökum þannig þátt í gleði foreldra með nýfæddu barni. Kvenfélagskonur hafa líka verið ötular að gefa fjármagn til að bæta aðstöðu á fæðingardeildum.
Framtíðin
Ég er bjarsýn á framtíð kvenfélaga og tel að þau eigi bara eftir að eflast. Það hefur sýnt sig að nýjar konur eru tilbúnar að ganga inn í félögin. Þau eru einfaldlega að komast aftur í tísku, ef hægt er að tala um það. Það hefur verið góð leið fyrir konur að kynnast og taka þátt í samfélagsstörfum, að ganga í kvenfélagið á staðnum. Mér hefur td. þótt sérlega vænt um það að sjá konur af erlendum uppruna, koma inn og verða sumar öflugar í starfi. Með nýju fólki koma breyttar áherslur og við sem fyrir erum, byggjum saman gott starf á traustum grunni.
Kvenfélagskonur, til hamingju með daginn!
Helga Dóra Kristjánsdóttir, formaður Sambands verstfiskra kvenna.
Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.