13.09.2012 | 20:00 - 22:00Endurreisn og aðalfundur Ísafjarðardeildar Garðyrkjufélags Íslands
Fyrirhugað er að endurreisa Ísafjarðardeild Garðyrkjufélags Íslands á fundi á Edinborg - Bistro á Ísafirði fimmtudaginn 13. september kl. 20:00. Fundurinn er jafnframt aðalfundur. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, þar sem m.a. verður kosin ný stjórn og verkefni vetrarins ákveðin, verða lögð fram til samþykktar drög að nýjum lögum fyrir deildina. Starfsvæði Ísafjarðardeildar eru Ísafjarðarsýslur. Á fundinum kynnir Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands starfsemi félagsins, m.a. verkefni þess á sviði rósaræktar og ávaxtatrjáræktar og stuðning við deildir félagsins á landsbyggðinni. Allir eru velkomnir á fundinn, hvort sem þeir eru félagar eða vilja kynna sér starfsemi félagsins.til baka í viðburðiSkrá viðburð