Viðburður

09.08.2012 | 16:06 - 16:06Söngurinn lengir lífið

Býður upp á Master Class söngnámskeið í Bolungarvík Boðið verður upp á söngnámskeið í klassískum söng í Félagsheimili Bolungarvíkur 9. - 12. ágúst næstkomandi. Kennnari á námskeiðinu verður bolvíska sópran söngkonan Sigrún Pálmadóttir en hún hefur starfað í Þýskalandi síðastliðin 10 ár. Undirleik annast pianóleikarinn Tuuli Rähni sem er Bolvíkingum og nærsveitamönnum af góðu kunn. Á námskeiðinu verður farið í klassíska söngtækni, túlkun og framkomu. Fyrirkomulag kennslu verður eftirfarandi: Tveir einkatímar í 45 mínútur í senn (skiptast á fim/fös kvöld og laugardags eftirmiðdag) Tveir hóptímar í 3 klukkutíma í senn (fyrripart laugardags og fyrripart sunnudags). Hóptímarnir eru opnir almenningi. Þátttakendur eru beðnir að undirbúa 1-2 lög að eigin vali og hafa meðferðis auka nótur fyrir Tuuli. Verð: Fullt námskeiðsgjald: 15.000 kr. Til að hlusta á hóptíma: 500 kr. Nánari upplýsingar og skráning í síma 845 2171 og á netangið SIGRUN_PALMADOTTIR@hotmail.com Umsóknarfrestur er til 29. júlí nk.

til baka í viðburðiSkrá viðburð


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi