bb.is | 12.04.2007 | 16:38Birnir ehf. kaupir Framnesið
Útgerðarfélagið Birnir ehf. í Bolungarvík hefur fest kaup skuttogaranum Framnesi ÍS-708. Framnesið var í eigu Hraðfrystihússins Gunnvarar, en það hefur legið við bryggju síðan árið 2005, er HG hætti veiðum og vinnslu á rækju. Jón Guðbjartsson, útgerðarstjóri hjá Birni ehf., segir að gert sé ráð fyrir að Framnesið fari á rækjuveiðar, og verði á rækju fram á haust. Þá verður athugað með að fara á bolfiskveiðar. „Við komum til með að leita eftir hagkvæmasta verðinu sem við getum fengið fyrir rækjuna, en helst viljum við auðvitað að það verði hér á svæðinu,“ segir Jón, en hann bætir því við að enn sé ferlið ekki komið svo langt og að það verði tekið í hægum skrefum. Jón segir að hjá útgerðinni ríki mikil bjartsýni vegna kaupanna og að þar á bæ séu menn trúaðir á að þau skili einhverju. Kristján G. Jóhannsson, stjórnarmaður HG, segir að hjá fyrirtækinu ríki ánægja með söluna, enda gaman þegar skip haldast á heimaslóðum.Framnesið var smíðað í Noregi árið 1973 og var eitt af fimm skuttogurum sem komu til Vestfjarða á sama tíma. Það var Fáfnir á Þingeyri sem gerði Framnesið út í fyrstu, en það hefur verið á Ísafirði síðan 1993.
tinna@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.