Frétt

Eiður Smári Guðjohnsen stendur með Manchester United.
Eiður Smári Guðjohnsen stendur með Manchester United.

visir.is | 03.04.2007 | 09:58Vonar að United fari áfram

Eiður Smári Guðjohnsen segir í samtali við Sunday Mirror að ensku liðin þrjú sem eftir eru í Meistaradeildinni komist öll áfram í undanúrslit keppninnar. Eiður Smári segist vera hrifnastur af Man. Utd sem hann er orðaður við. Fjórðungsúrslit Meistaradeildar Evrópu hefjast í kvöld og af liðunum átta eru þrjú ensk lið eftir í keppninni. Þau mætast ekki innbyrðis sem þýðir að þau gætu öll farið í undanúrslit. Komi til þess mun Liverpool mæta Chelsea og Manchester United annaðhvort Bayern München eða AC Milan.

Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, segir í samtali við Sunday Mirror að hann búist við því að öll þrjú ensku liðin komist áfram. Barcelona tapaði fyrir Liverpool í 16 liða úrslitum. Hans fyrrum félagar í Chelsea mæta Valencia sem Eiður þekkir vel til. Eiður varar sína gömlu félaga við David Villa, hinum spænska landsliðsmanni Valencia.

„Hann er frábær leikmaður, mjög fljótur og líflegur á vellinum. Hann er mjög skynsamur í sínum hreyfingum í sókninni. Ég held að Chelsea vegni ágætlega og býst fastlega við því að félagið komist áfram," sagði Eiður sem segist vera reiðubúinn að veita sínum gömlu félögum einhver ráð leiti þeir eftir því. Til að mynda góðvinum sínum Frank Lampard og John Terry.
„Við höfum verið í góðu sambandi síðan ég fór til Spánar. En við ræðum meira um lífið almennt heldur en fótbolta. Við tölumst meira við sem vinir en fótboltamenn."

Landsliðsfyrirliðinn þekkir einnig vel til hollenska liðsins PSV þar sem hann lék árum áður. „Ég hef fylgst með því frá ári til árs og liðið heillar mig í hvert skipti sem ég sé það spila. Liðið er ávallt vel skipulagt og hættulegt í skyndisóknum. Leikmenn mæta alltaf vel undirbúnir til leiks."
Hann segir Liverpool og þekkjast vel enda hafi þau mæst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í haust. „Liverpool var með betri úrslit í þeim leikjum og er því líklegri aðilinn nú."


Spurður um hlutverk Stevens Gerrard í Liverpool segir Eiður að það komi honum á óvart að hann skuli ekki vera í þeirri stöðu þar sem hann er hvað bestur. „Gerrard er einn af bestu miðjumönnum heimsins og því skrítið að nota hann ekki á miðjunni."

Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney hafa verið áberandi í fjölmiðlum þetta tímabilið en Eiður tekur sérstaklega fram að Ryan Giggs hafi átt gríðargóðu gengi að fagna í ár. „Giggs hefur verið einn af bestu leikmönnum United í vetur. Ég myndi vilja sjá að United kæmist áfram í undanúrslit og ég held að liðið geri það. Ég er mikill aðdáandi leikstíls liðsins þessa stundina enda flottur stíll yfir liðinu."

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli