Frétt

mbl.is | 14.07.2005 | 08:15Öryggisverðir í lyfjaverslanir

Öryggisverðir verða í verslunum Lyfja og heilsu þessa vikuna í það minnsta, og er það meðal viðbragða lyfsölukeðjunnar við vopnuðum ránum í verslununum undanfarið, en tvö vopnuð rán voru framin í verslunum keðjunnar um og eftir síðustu helgi. Starfsfólk Lyfja og heilsu hittist á fundi í gærkvöldi til þess að ræða þá stöðu sem upp er komin vegna ránanna og var forvarnarfulltrúi Lögreglunnar í Reykjavík fenginn til að gefa góð ráð.

„Þetta er liður í áfallahjálp, að hjálpa fólki að vinna úr áfallinu. Mesta skelfingin bitnar á örfáum starfsmönnum sem verða fyrir þessu ofbeldi," segir Hjalti Sölvason, rekstrarstjóri Lyfja og heilsu.

Hann segir forsvarsmenn lyfjakeðjunnar hafa óttast fjölgun rána í verslunum sínum undanfarið.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook

Kommentað um frétt (0 Komment )

    Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.


    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli