mbl.is | 25.02.2004 | 11:52Evrópsk fjarskiptafyrirtæki leiðandi í þróun á 3. kynslóðinni
Japönsk og evrópsk fjarskiptafyrirtæki hafa tekið forystu í þróun á þriðju kynslóðar farsímaþjónustu, að því er fram kom í tengslum við árlega farsímasýningu og ráðstefnu, 3GSM World, sem er haldin í Cannes í Frakklandi í febrúar. Á sama tíma eiga fyrirtæki í Bandaríkjunum talsvert í land í þróun á slíkri tækni. Þar kom fram að þriðja kynslóðin, sem hefur gengið undir staðlaheitum eins UMTS og w-CDMA, hefur náð útbreiðslu í löndum eins og Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki, Japan og Kóreu.
Fjarskiptafyrirtæki eins og T-Mobile eða 3 í Evrópu og NTTDoCoMo í Japan notfæra sér tækni, sem er talin vera 50 sinnum hraðvirkari en áður hefur þekkst og er notuð til þess að efla getu farsímakerfa og tryggja nýja þjónustu. Má þar nefna 2,4 Mb þráðlaust háhraðanet, að sögn zdnet.co.uk. 3. kynslóðar þjónusta gerir notendum einnig mögulegt að hlaða leikjum um Netið, miðla hljóðskrám eða myndbandsskrám.Þá segir að bandarísk farskiptafyrirtæki hafi leitt slíka þróun í skamman tíma árið 2002 og í upphafi árs 2003, en prófanir hafa ekki gengið sem skyldi. Verizon Wireless í Bandaríkjunum er eina fjarskiptafyrirtækið í landinu sem er næst því að hefja almenna notkun á þriðju kynslóðarþjónustu, en gagnahraði fyrir notendur í kerfi þess verður frá 300 til 500 kb/s. Slík þjónusta er einungis til staðar í Washington og San Diego, en þjónustan verður tekin í gagnið víðar næsta sumar. Fyrirtækið gerir sér vonir um að það nái evrópskum og japönskum fjarskiptafyrirtækjum í þróun á þriðju kynslóðinni á næstu tveimur árum.
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.